Deve sempre essere un’app? – RÚV.is



https://v.redd.it/2lhnjoqqh9ig1

di birkir

1 commento

  1. >####Fjölmörg íslensk fyrirtæki eru með smáforrit fyrir viðskiptavini sína. Forritin safna upplýsingum um notendur. Tæknisérfræðingur segir fulla ástæðu til að vera tortryggin gagnvart gagnasöfnuninni.
    >
    > Hugtakið app-þreyta lýsir hversu yfirþyrmandi notendum getur fundist framboð smáforrita til að leysa öll möguleg og ómöguleg verkefni. Smáforrit fyrirtækja eru hönnuð í fjölbreyttum tilgangi, í þeim má stundum nálgast afslætti, þau geta auðveldað viðskipti eða hreinlega verið forsenda þeirra.
    >
    > Nýlega gáfu Hagar út nýtt afsláttarforrit. Hvers vegna leggur fyrirtæki í dýra hugbúnaðarþróun og markaðssetningu á smáforriti til þess að veita viðskiptavinum afslátt – hvað græðir fyrirtækið eiginlega á því?
    >
    > Guðmundur Jóhannsson tæknisérfræðingur segir fyrirtæki ekki eingöngu sækjast eftir auknum viðskiptum með því að bjóða afslátt í appi, þau safni líka gögnum.
    >
    > „Fyrirtækið græðir á því að vita sem mest um viðskiptavini sína, aldur, kyn, kauphegðun. Allt þetta hjálpar þeim til að mögulega selja meira.“

Leave A Reply