4 commenti

  1. ég held að viðbrögð samfélags við glæpum eigi ekki að vera að sýna ekkert annað en grimmd eða hefnigirni heldur að setja fókus á forvarnir sem við vitum að koma í veg fyrir að fólk grasseri í aðstæðum sem kynda undir svona afbrot

    tel jafnvel að fólk sem hugsar bara í grimmd sýni ákveðinn persónuleikalöst eða í besta falli skeytingarleysi og enn fremur að það sé varhugavert einkenni um bágborið sálfræðilegt ástand samfélagsins að birtingarmynd viðbragðs fólks við hrottalegum glæpum séu að breytast á þann hátt að fólk er upp til hópa farið að kæra sig kollótt um orsakirnar yfirleitt og vill bara tala um hörðustu afleiðingar í formi refsinga

    ef það er meira á bakvið hugsunarháttinn væri gaman að sjá þá hliðar koma líka fram, ekki bara grimmilegar upphrópanir um dýflissur og þrældóm, útlegð eða enn verra

    ofbeldi elur af sér ofbeldi, í því samhengi skiptir engu máli hvaðan ofbeldið kemur

    auðvitað á að vera refsing, en það er kominn tími á að sumir taki smá hitatékk á eigin ástandi líka

Leave A Reply