Perché qui l’inflazione è molto più alta che in altri paesi nordici?

https://i.redd.it/rnugkpm9kohg1.jpeg

di Einn1Tveir2

4 commenti

  1. Proper_Tea_1048 on

    Ættum líka að vera spurja hvað eru finnar, svíðþjóð og færeyar að gera til að halda verðbolgunni í algjöru lámarki.

  2. Vinsæla svarið er að kenna krónunni um þetta.

    Raunverulega svarið er að stjórnmálin okkar, það er efnahagsstefna og peningastefna ríkisstjórna lýðveldisins, haga regluverkum á þá vegu að verð á þeim hlutum sem falla undir neysluvísitöluna okkar fá að hækka og hækka óáreittir og allt tal um að koma einhverjum höldum á verð á marköðum hérna er alltaf drepið á dreif í rifrildi um launastefnu í einkageiranum.

    En í raun er það ríkið sem á að koma höldum á verðlag, ekki einkageirinn, ekki verkalýðsfélög, og alls ekki á vinnandi fólk. Ríkið sér um að halda niðri verðbólgu, og ríkið gæti valið að henda út krónunni ef ríkið teldi að það væri væntanlegt til sigurs.

    Ég sjálfur veit ekki hvort krónan sé svo ómöguleg að við ættum að henda henni eins og plágunni – ég hef ekki menntunina, eða reynsluna, sem þarf til að greina þá fjölmargvíðu spurningu. En ég veit að frá því verðtryggingu var komið á, fyrst bæði á laun og skuldir og svo afnumin næstumþví samdægurs af launum – þá hefur ríkið hagað seglum sínum þannig að verðbólga er óumflýjanleg og að afleiðingar hennar enda alltaf á neytendum, en ekki fjármagnseigendum eða stofnununum þeirra.

    Kannski er bæði satt – það er kannski er krónan ómöguleg, og ríkið er að spila þennan leik vitandi það. Þá myndi ég samt vilja að ríkið hætti að spila þennan leik samhliða því að taka upp annan gjaldmiðil af því annars heldur ríkið bara áfram að spila sama leik með nýja gjaldmiðlinum þó svo að það þurfi að finna önnur tól en peningastefnuna sem við hefðum þá gefið frá okkur til erlendra stofnanna.

Leave A Reply