Segni di legami con i servizi segreti stranieri

https://www.visir.is/g/20262850213d/merki-um-tengsl-vid-er-lenda-leyni-thjonustu

di iceviking

3 commenti

  1. gerningur on

    Er þetta eitthvað sérstaklega fréttnæmt. Hefði haldið að hægt væri að ganga ut fra því að leyniþjonustur stórveldanna: BNA, Kína, Russland væru alltaf annað slagið að hnýsast hérna

  2. allsbernafnmedrettu on

    Alltaf þegar stríð brýst út þá byrja þeir að dreyfa svona fréttum

  3. >Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að hluti brota erlendra ríkisborgara
    tengist stöðu þeirra, svo sem ólöglegri dvöl eða fölsun ferðaskilríkja, en ekki
    endilega annarri brotastarfsemi. Þá benda gögn lögreglu til þess að ítrekunartíðni
    sé almennt lægri meðal grunaðra með erlent ríkisfang en meðal þeirra sem eru
    með íslenskt ríkisfang.

    áhugavert að Íslendingar eru enn duglegri við að brjóta ítrekað af sér miðað við hvað frásagnir fjölmiðla af ítrekuðum glæpum einskorðast að miklu leyti við erlenda hópa

    >Netbrot falla þar undir og benda rannsóknir til þess að 5–6% landsmanna
    verði árlega fyrir fjárhagstjóni vegna slíkra brota.

    verða 5-6% landsmanna árlega fyrir fjárhagstjóni vegna netglæpa? um 20 þúsund manns???? er fólk bara að leggja inná þjófa hægri vinstri?

    >Ofbeldisbrotum hefur einnig fjölgað, jafnvel þegar tekið er tillit til íbúafjölgunar. Megin skýringin er aukin vitund og betri skráning heimilisofbeldis,

    mikið er þetta sorglegt, auðvitað er mikilvægt að þessi brot séu loksins rétt skráð en hvernig er hægt að koma í veg fyrir þau?

    >Á tímabilinu 2019-2024 voru 12 börn, 18 ára og yngri, af fimm mismunandi þjóðernum skráð sem mögulegir þolendur mansals

    jesús, 12 börn síðan Covid byrjaði – eru til gögn um hvort þetta sé tengt vændi eða hvort þetta sé tengt annars konar mansali?

    >Lögregla á Íslandi býr yfir upplýsingum um einstaklinga sem telja verður
    hættulega samfélaginu, þar sem viðkomandi hafa vilja eða getu til að fremja
    alvarleg ofbeldisverk. Slík ógn er að eðli til einstaklingsbundin, ófyrirsjáanleg og
    erfið viðureignar, enda byggir hún síður á skipulagi en hugmyndafræðilegri
    réttlætingu ofbeldis.

    kemur mér ekki á óvart, ég sé hugmyndafræðilega réttlætingu á ofbeldi í íslenskum kommentakerfum á hverjum degi

Leave A Reply