Ætlaði að hlusta á upphaf umræðu um þingsályktunartillögu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en hún kemst ekki að þar sem minnihlutinn er strax farinn að beita sömu aðferðafræði og á síðasta ári þegar stór mál, líkt og veiðigjaldið, var rætt.
Undir liðnum fundarstjórn forseta mæta þingmenn minnihlutans aftur og aftur upp í pontu að segja nákvæmlega sama hlutinn aftur og aftur með uppgerðar bræði og tilgerðarsemi. Væna utanríkisráðherra um brot á þingsakaparlögum og plott með embættismönnum í Brussel, sem allir heilvita menn sjá að stenst enga skoðun.
Þá finnst mér sérstaklega hjákátlegt, jafnvel grátlegt, að minnihlutinn sakar ríkisstjórnina um skort á samráði við þjóðina þegar hún er bókstaflega að leggja það til að þjóðin verði spurð beint um sitt álit á málinu í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu!
Sérstaklega finnst mér það ósvífið þegar það kemur frá mönnum eins og Sigmundi Davíð sem var forsætisráðherra sem tók einhliða ákvörðun um að slíta viðræðum við ESB án þess að hafa nokkurt samráð við þjóðina þrátt fyrir að hafa lofað að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Það er greinilegt að minnihlutinn hefur ekkert lært af síðasta þingi þegar sem þjóðin hefur sjaldan, ef nokkrun tíman, verið jafn andvíg minnihluta þingsins út af akkúrat svona lágkúrulegum vinnubrögðum.
1 commento