>„Stefnumótunin fer fram í menntamálaráðuneytinu og það er eitt sem að þau verða bara að átta sig á það er ég sem er menntamálaráðherrann. Ég býð fram mínar hendur í allar áttir og opinn faðm og endalaust til í samtalið,“ sagði Inga.
betaútgáfa af Trump er mætt, til hamingju Ísland
Equivalent_Day_4078 on
“Any man who must say I am the king is no true king.”
DTATDM on
Annars vegar, alveg rétt hjá Ingu að það þarf ekki allt í menntamálum að vera í samráði við kennara. Kennarar hafa ekki sömu áherslur, hvata, og þarfir og nemendur. Menntamálaráðuneytið á að þjóna nemndum (sem var aðal-krítíkin mín á Ásthildi Lóu).
Að því sögðu, þá sé ég ekki alveg hvað ráðherrar Flokks Fólksins eru að gera í menntamálum. Fengu það greinilega fyrir Ásthildi, og sitja svo sem fastast því þeir skulu hafa 3 ráðherrastóla. Hef ég misst af einhverju, eða hafa þau lagt til eitthvað í menntamálum sem er til þess fallið að raunverulega bæta nám nemenda?
Johnny_bubblegum on
Það er löngu komið í ljós að Inga hefur ekki persónugerðina til þess að fara með nokkur völd.
Hun veit ekkert um menntamál, hún hefur engan áhuga á þeim, hún veit ekki einu sinni hvernig menntakerfið virkar og hefur lítinn áhuga á að læra á það, hún segir hluti sem eru einfaldlega kolrangir og getur ekki viðurkennt það þegar spurt er út í það og hún hefur út yfirlýsingar hægri vinstri sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum og nýjasta gallup könnun ræður því hvaða bull kemur upp úr henni í pontu…
Hún minnir mig á alla þessa íhaldskalla sem skotið hafa upp kollinum síðustu 10 ár eða svo.
Það verður hreinlega spurning hve mikinn varanlegan skaða flokkur fólksins mun gera áður en hann hverfur undir 5% í kosningum og deyr.
4 commenti