Penso che sia del tutto insensato che la gente voglia appartamenti “più piccoli e più convenienti”. Molte persone vorrebbero averne uno più grande, ma è semplicemente troppo costoso e nessuna persona media può permetterselo. La loro soluzione è semplicemente costruire appartamenti più piccoli, il che è pazzesco. Le persone vengono costrette in minuscoli appartamenti senza vista, senza sole, con cattiva acustica e senza parcheggio, nessuno lo ha chiesto. Dopotutto si vede perché questi appartamenti si vendono molto poco, ma alla fine alcune persone sono costrette ad acquistarli. La densità urbana è andata completamente fuori controllo.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-22-vid-erum-ad-byggja-of-dyrar-ibudir-473434

di stigurstarym

8 commenti

  1. derpsterish on

    Innviða- og gatnagerðargjöld per íbúð eru sky high. Brotabrot af því hvað byggingarefnið kostar.

  2. Ef að hagkvæmu þéttu steypuklumpabyggðirnar eru of dýrar í framkvæmd, hvað er þá ódýrara?

  3. No-Aside3650 on

    Ég vill ekki litla íbúð á háu verði, ég vill 100 fm íbúð á góðu verði. Ég vill hafa eitt aukaherbergi við barnaherbergið.

    Svarið hafa aldrei verið stúdíóíbúðir sem hafa verið hlutfallslega dýrari en aðrar íbúðir. Svarið er að fasteignaverð þarf að hrynja í eðlilegt horf!

  4. TemporaryEconomist on

    Þétting byggðar er mögulega sársaukafull en sparar öllu þjóðfélaginu gríðarleg fjárútlát til lengri tíma litið.

    Helsta vandamálið er að þjóðin hefur litla þolinmæði fyrir aðgerðum sem skila árangri yfir langt tímabil. Þjóðin vill aðgerðir með áþreifanlegum árangri sem allra fyrst. Helst strax í dag.

    Það er ekki geggjað fyrir okkur sem þjóð. Þá erum við að pissa í skóinn og alltaf að gera allt dýrara fyrir næstu kynslóðir, bara til að gera hlutina ögn þægilegri fyrir okkur í dag.

    Sprawl er spilaborg sem hrynur að lokum og eykur einungis á undirliggjandi vandamál. Þétting þvert á móti leysir stóran hluta þess, en árangurinn kemur ekki fram nema yfir mjög langan tíma.

  5. stjornuryk on

    Hugsið þá meira en 2 ár fram í tímann, einu sinni.

    Vinnið með sveitarfélögum og skipuleggið ný svæði til byggðar utan miðborgarinnar.

    Opnið fyrir útboð á lóðum svo fólk getir byggt sér sitt eigið húsnæði á útjaðri borgarinnar og slakið á byggingarreglugerðum.

    Það er engin skortur á lóðum, við búum í mest megnis óbyggðu landi.

    Hættið að kremja ógeðslega ljótum íbúðarbygginga kössum í skuggareiti án bílastæði. Fólk vill ekki búa svona. Þessar íbúðir eru hannaðar og byggðar fyrir airbnb útleigu.

    Hvernig þessi “þétting byggðar” var var útfærð eru skipulagsmistök aldarinnar í Reykjavík.

    Það þarf ekki að halda áfram sð gera sömu mistök aftur og aftur, breytið um gír.

  6. RemoteWhole1729 on

    Hvernig er að búa í íbúð með gluggalausu baði, í íbúð með glugga á einum vegg af fjórum? Hvernig er að ganga alltaf inn á skónum í íbúðina sem er ekki með anddyri? Hvernig er að vera ekki með möguleika á að vera með baðkar? Hvernig er að vera ekki með pláss fyrir meira en einbreitt rúm og skáp í hverju barnaherbergi? Hvernig er að vera ekki með gott loftstreymi í íbúðinni? Það hljómar bara ekki vel.

    Það er ekki eins og það sé ekki búið að finna hvernig fólki þykir best að lifa, hvort sem það er í lítilli eða stórri íbúð – það þarf einfaldlega að byggja þannig. Þétting byggðar kemur þessu ekki við – það er hægt að byggja þétt með mannvænlegri íbúðum. Borgin gæti lagt sig fram við að fella niður gjöld fyrir þannig framkvæmdir.

Leave A Reply