Share.

4 commenti

  1. Auðvitað – ef þú villt hafa áhrif þá setur þú þig inn í málin á þann máta að þú getir haft áhrif á þau. Það eru beinir og augljósir hagsmunir í gangi þarna svo auðvitað tekur fólk ábyrga ákvörðun og fylgist með.

    Það er það skrítna við fjármagnsöflin okkar hérna sem eru að setja sig í þá stöðu að geta ekki haft nein áhrif, af því þau vilja ekki taka þátt í tilraun til að banna okkur öllum að taka þátt. Það er afleikur þeirra sem aldrei hafa þurft að hafa fyrir neinu og hafa fengist að venjast því að fá allt gefins upp í hendurnar á sér.

    Stundum tala kanarnir sem ég vinn með um hvað ísland er mikið “amateur hour” þegar það kemur að hlutum sem þeir eru vanir að séu bara klipptir og skornir sjálfs síns vegna af því hlutir skipta máli – viðbrögð hagsmunaraðila hérna heima passa vel inn í þá pælingu.

    Ekki að það sé endilega neitt betra að vera með fjármagnsöfl sem kunna leikinn, þetta er bara pínu sveitó hjá okkur.

  2. ég vil endurtaka spurningu sem ég spurði hérna rétt áðan, sem þú blokkaðir mig fyrir að spyrja: hvernig tengist þú aftur Viðreisn? 👀

  3. Calcutec_1 on

    Hversu fyndið yrði það ef að sægreifarnir mundu gerast stuðningsmenn aðilildarviðræðna af því að það væru augljós gróðatækifæri í gegnum samvinnu:) XD og XM þyrftu að hafa ansi snögg handtök

  4. Það eru örfá hollensk sjávarútvegsfyrirtæki sem stjórna nánast sjávarútveginum í ESB: https://www.euronews.com/2025/05/20/investigation-reveals-sprawling-empire-of-5-dutch-companies-dominating-europes-fishing-ind

    Þetta eru 5 hollensk fyrirtæki sem eru stærstu sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu og tengslanet þeirra við hundruði dótturfyrirtækja sem að ráða yfir kvótanum í evrópskri efnahagslögsögu og eitt þeirra fyrirtækja heitir, Parlevliet & Van der Plas, það fyrirtæki þekkir Samherja einstaklega vel þar sem þau vinna saman, meðal annars í Namibíu.

    > UK Fisheries is owned by Dutch conglomerate Parlevliet & Van Der Plas and Icelandic Samherji. Together, they hold all rights for deep sea fisheries in distant waters like Svalbard, an archipelago north of Norway. UK Fisheries lost some quotas after Brexit as the UK hasn’t managed to secure the same deals that the EU had. In an email, the company pointed out that “following a drastic reduction in fishing opportunities in 2020”, they had to sell some of their ships and lay off the majority of their crew members.

    Samherji og Brim eru nú þegar hluti af þessari fámennu evrópsku “sjávarútvegsmafíu” í gegnum dótturfélögin sín, svo núna skilur maður betur þessa afstöðu Brim og Samherja gagnvart ESB.

Leave A Reply