Share.

9 commenti

  1. finnur7527 on

    Var Kveikur þá bara að framleiða samþykki fyrir ríkisstjórnina? Er þetta ásættanleg samvinna ríkisvalds og Ríkisútvarps, eða spilling?

    Ég er sammála því að það er allt of mikið vændi á Íslandi og það þurfi að lágmarka skaðann sem það veldur. En þetta finnst mér vera mjög vafasamt samstarf og útskýrir kannski af hverju Kveikur vildi ekki tala við Rauðu regnhlífina.

  2. Calcutec_1 on

    >“Einnig verður skoðað hvort rétt sé að gera breytingar á lögum til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla.”

    Held að þetta sé vænlegra til árangurs, giska á að stór hluti kaupenda myndu hugsa sig tvisvar um ættu þeir á hættu að fjölskylda vinir og vinnufélagar vissu af þessu

  3. Þannig að þessi einhliða umfjöllun í kveik var keypt. Gott að sjá fjölmiðla hjálpa til við að framleiða samþykki fyrir heimskulegum ákvörðunum yfirvalda.

  4. Ekkifleirimistok on

    Þetta á pottþétt eftir að hjálpa þeim konum sem stunda vændi.

    Það hefur marg sýnt sig og sannað að harðari refsingar virka eins og sést skýrt á fíkniefnainnflutnigni. Á Íslandi eru engin fíkniefni að finna þökk sé hörðum refsingum yfirvalda.

    Það er okkur öllum ljóst að hið sama mun gilda hér.

  5. Equivalent_Day_4078 on

    Mín (ekki fastmótuð enn) skoðun er að afnema nafnleynd og sekt er örugglega góður fælingarmáttur en lágmarks fangelsisvist er fulllgróft. Gallinn við hollensku og þýsku leiðina er að vændi var bæði lögleitt og venjuvætt og venjuvæðing á vændiskaupum er örugglega ekki góð leið fyrir þjóðfélagið.

    Vandamálið við fangelsisvist fyrir vændiskaupendur er að það gerir ekki stigsmun á hversu slæmt það er. Ofbeldisglæpir eru oft í besta falli dæmdir á skilorði. Með þessu móti er þá lítill munur afleiðinga séð að vera vændiskaupandi og vændiskaupandi sem beitir líkamlegu ofbeldi á kúnna í þokkabót.

    Bæði er slæmt að mínu mati en hitt er á hærra stigi og þetta myndi kannski fæla marga frá því að tilkynna seinni aðilann þar sem seljendur vilja ekki þurfa að setja fyrri aðilann í möguleg vandræði.

  6. Hvað kostar þetta mig? Fæstir dómar í opinberum málum eru birtir með nöfnum og hluti dóma eru aldrei birtir. Kostnaðurinn við þennan málaflokk mun stóraukast ef 90-95% af málum í dag lýkur með sektum (það er hraðvirkara og ódýrara að borga sektina heldur en að halda uppi vörnum, hvort sem viðkomandi telur sig sekan eða ekki) en með refsingu umfram sektir verður þetta allt að dómsmálum og einhverjar milljónir pr. mál óháð útkomu, fyrir utan að sönnurbyrði þarf að hækka úr “lögreglumaður sá þig fara inn og úr húsi”.

Leave A Reply