
,,Ritorno al passato
Il nome di questo leader è Hildur Björnsdóttir e guida ancora il Partito dell’Indipendenza. Tuttavia si è completamente adattata alla sua politica e ora è diventata una sostenitrice dello sviluppo della città in campagna. Il passato è improvvisamente diventato il soggetto e il sogno. Più asfalto e trasporti per alcuni è diventato il mantra.
Uno dei rappresentanti del gruppo dell’asfalto contro il quale lei protestò qualche anno fa è ora sulla lista guidata da Hildur, e nel manifesto del Partito Indipendentista si sottolinea “la revisione di Borgarlína da zero e l’implementazione di un nuovo sistema di treni espressi su corsie speciali che non limitino il traffico” in conformità con le priorità di quel gruppo. Altre priorità riguardano quasi tutte la distruzione dell’accordo sui trasporti dell’area della capitale, ma l’aumento del numero di incroci e parcheggi irregolari."
È come se il documento politico XD nella città fosse stato scritto nel XX secolo e fosse direttamente “copia-incollato” dal Piano generale di Reykjavík 1962-1983 o in termini colloquiali dal piano automobilistico americano
Hildur sem vildi breyta sveit í borg vill nú breyta borg í malbik
di numix90
8 commenti
Er Borgarlínan ekki “hraðvagnakerfi á sérakreinum sem þrengir ekki að umferð”? Er semsagt málið að bara endurnefna Borgarlínuna og láta gott heita?
Þjóðernis-allt-var-betra-í-gamladaga-rembingur sem á að höfða til sjalla sem líta hýru auga til miðflokksins.
Ég heyrði í vikunni það flytji 80 manns í bæinn í hverri viku og það bætist við 70 bílar í hverri viku sömuleiðis a svæðið.
Á einu ári eru það 3.640 bílar og það er ekki pláss til þess að *plís bara ein akgrein í viðbót* á 10 ára fresti.
Þetta minnir ofboðslega á baráttu íhaldsins gegn aðgerðum við loftslagsbreytingum. Humma af sér vandamálið þangað til það skellur á af fullum þunga og kostnaðurinn orðinn þrefaldur við að leysa það.
Borgarlínuverkefnið var frábær hugmynd, sem samfó o.fl. gerðu að einhverjum trúarbrögðum og fóru svo með alveg út á tún. Þrengingar á stöðum þar sem er nóg pláss, þráhyggju fyrir miðjusetningu þar sem hún þarf ekki.
Byrja á réttum enda. Skapa valmöguleika fyrir bíla fyrst – svo fækka bílum. Í staðinn eru umferðarteppur þar sem þær þurfa ekki að vera og allir brjálaðir!
Samfylkingin þarf að jarðtengja sig og taka sér smá frí. Ég kýs Hildi og kó.
Er ekki Borgarlínan þess háttar verkefni að það eru í raun engar líkur á að menn geti bakkað úr því úr þessu? En svona fínt að slá um sig með einhverjum frösum til þess að kaupa atkvæði fólks sem trúir þessu?
Las yfir stefnuskrá sjálfstæðisflokksins í samgöngumálum í borginni og annað eins prump hef ég ekki lesið.
Það er þarna fullt af loforðum sem þau ætla augljóslega alls ekki að efna og ef þau efna þau að þá munu þau kosta borgina alveg þvílíka fjármuni.
– Endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins – peningasóun og frestun
– Stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni svo ekki sé rukkað eftir 18 – skiptir þetta í alvörunni máli eða hljómar þetta bara næs?
– Fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum í miðborg – þetta mun sennilega gleymast fyrst því að fólkið sem mun kjósa þau útaf þessu fer aldrei niður i miðbæ
– Við ætlum að hafna fyrirhuguðu deiluskipulagi á suðurlandsbraut – held að þetta sé mjööög sterk lygi sem yrði ekkert af, ætlað til að veiða atkvæði karlpunga.
– Við ætlum að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka – nei það ætla þau ekki að gera, myndi allt fara í fokk þarna aftur.
Svo er maaaargt fleira þarna sem mun svo bara gleymast á rosalega hentugan hátt ef þau fengju borgarstjórn. Þetta væri fast í nefndum öll 4 árin.
En það besta, hitamálsatkvæðin: Við ætlum að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð. – þetta er á stefnuskránni eftir 4 ár, það verður sennilega búið að gera borgarlínuna (á suðurlandsbrautinni meira að segja haha!) og þá verður of seint að hætta við og þá koma aðrar lygar.
uuu ég var að lesa fréttina aftur sorry, en er ég að skilja þetta rétt, Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er kominn með einstakling á lista hjá sér sem var einn forsvarsmanna hóps sem barðist fyrir samgöngustefnu sem miðar að auknu malbiki og forgangi einkabílsins og nú birtist svipuð stefna í stefnuskrá flokksins? Til að umorða þett; Á framboðslista XD í Reykjavík er nú að finna aðila sem tengist hagsmunasamtökum sem hafa barist fyrir auknu malbiki, fjölgun mislægra gatnamóta og greiðara aðgengi fyrir einkabílinn. Þá er athygli vakin á því að þau vilja einnig selja Malbikunarstöðina á Höfða.
Úr fréttinni: „Einn forsvarsmanna malbikshópsins sem hún(Hildur) andæfði með andköfum fyrir nokkrum árum er nú kominn á listann sem Hildur leiðir og í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er áhersla á „að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð“ í samræmi við áherslur þess hóps. Aðrar áherslur snúast nær allar um að eyðileggja samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en fjölga mislægum gatnamótum og bílastæðum.”
Er fólk bara farið að pósta sínum eigin bergmálshelli hingað, ætli að það sé útaf því að þegar maður er ansi langt farinn inn í hellinum sínum að þá missir maður getuna til að aðgreina.