Share.

6 commenti

  1. Plastic-While2737 on

    Ok? Ertu með einhverja pælingu?

    Við erum alveg fullfær um að skoða internetið.

  2. Pæling. Af hverju er alltaf notað frjósemi en ekki fæðingartíðni?

    Annars gefur það auga leið að barneignir á Íslandi er því miður ekki efst í forgangsröðun unga fólksins enda er það ekki praktískt; ómögulegt að kaupa hús, ómögulegt að fá barn á leikskóla.

  3. netnotandi1 on

    Eins dásamlegt og það er að eiga barn þá koma þessar tölur mér ekkert að óvart.

    Mega vesen að fá pláss hjá dagforeldri/leikskóla.

    Endalausir starfsdagar og viðburðir sem foreldrar þurfa að redda/mæta á.

    Skólagjöld eru ekki ódýr.
    Lengri viðvera kostar auka.

    Svo mikill tími og peningur sem fer í íþróttaiðkun hjá barni.

    Umferðin i Reykjavík er í molum og þú ert heppin ef þú nærð að sækja á réttum tíma.

    Fólk bryður töflur til að halda sér gangandi og streita í þjóðfélaginu er upp úr öllu valdi.

    Þetta er samt allt í lagi.. Við erum önnur hamingjusamasta þjóð í heimi.

  4. ConcentrateFar7753 on

    >Aldursbundin fæðingartíðni mjög lág á meðal mæðra undir tvítugu

    No shit Sherlock

  5. RaymondBeaumont on

    “Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu var í fyrra 3,1 börn á hverjar 1.000 konur sem er afar lágt í samanburði við tímabilið 1961-1965 þegar hún fór hæst en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Fyrir utan síðustu ár þarf að fara aftur til ársins 1870 til að finna ár þar sem fæðingartíðni mæðra undir tvítugu fór undir fjögur börn á hverjar 1.000 konur.”

    Vel gert!

Leave A Reply