
Ebbene, gli esponenti della destra difenderanno questo? Un neonazista tiene un discorso al Partito Centrale e il pubblico esulta.
https://www.visir.is/g/20262881290d/-kynthattaraunhyggjumadur-og-tals-madur-fjoldabrottvisana-flutti-raedu-a-vid-burdi-ungra-midflokksmanna
di Calcutec_1
8 commenti
Nei?
Fólkið sem hefur hingað til bara litið framhjá þessu mun halda því áfram. Ef það snertir það ekki beint þá kemur þetta þeim ekki við.
Munu segja sem minnst, jáa með fólki sem tjáir sig um þetta, hversu ógeðslegt þetta sé, hversu mikið hatur þetta sé og svo framvegis… og síðan setja X við M.
Ef illa fer mun þetta fólk aldrei kannast við að hafa kosið flokkinn.
Hmm 2 hlutir.
Hvað í andskotanum er kynþáttaraun…..
Hveru margir flóttamenn/innflytjendur eru frá Mið Austurlöndum langar voðalega mikið heyra einhvern þátta stjórnandi spyjra þenna vitlising þessarar spurningar og athuga hvort hann viti eitthvað í sinn haus
Elska hvað þetta lið er alltaf að reyna að verja þessa fordómar sína og hatursorðræðu með því að segja að þeir séu að gera þetta í þágu barnanna. Skiptir engu þó svo að hóparnir sem þeir eru að tala um ná oft einnig til barna.

Hann er að röfla svo mikla vitleysu um trans fólk að ég bara, veit ekki hvar á að byrja.
Mig langar að allir fjölmiðlar gangi á Formann og Varaformann flokksins og láti þá svara fyrir þetta
Ég veit ekki hvað það er að vera kynþáttaraunhyggjumaður. En mín fyrsta ágiskun, svona út í bláinn, er að hann hafi þá skoðun að genamengi okkar Íslendinga sé of fábrotið og einhæft eftir ýmsan mannfelli á miðöldum og að nauðsynlegt sé að fá innflytjendur héðan og þaðan úr heiminum til að auka á breiddina. Ennfremur ætla ég að giska á að honum sé kunnugt um að mesta breiddin í genamengi Homo Sapiens sé í Afríku sunnan Sahara, og að þaðan komi því eftirsóknarverðustu innflytjendurnir.
Það sem mér finnst áhugavert og óhugnanlegt er að svona þjóðernispopúlistaflokkar lögðu sig, fyrir bara nokkrum áratugum, mjög hart fram við að afneita svona hugmyndum um líffræðilegan rasisma eða “kynþáttaraunhyggju”.
Svíþjóðardemókratar til dæmis lögðu sig mikið fram eftir aldamótin við að þagga niður gamalt tal um líffræðilega yfirburði kynþátta og fóru að tala frekar um óhjákvæmilegan mun á milli menningarheima, árekstra milli trúarbragðahópa og svoleiðis. Þannig náðu þeir pínu að hreinsa af sér uppruna sinn sem nýnasistahreyfing, án þess í raun að breyta mjög miklu af stefnu sinni efnislega.
Það að gaur með svona orðbragð geti enn átt einhvern frama innan Miðflokksins sýnir í fyrsta lagi að það er ekkert efnislegur munur á þessu tvennu, líffræðilegum rasisma eða fordómum sem þykjast byggja á menningarlegum forsendum. Þetta er allt sami hluturinn í mismunandi umbúðum.
Í öðru lagi sýnir það að þegar orðræða flokks er orðin nógu normalíseruð færast flokkar eins og Miðflokkurinn aftur í gamla gírinn, fara aftur að tala um yfirburði kynstofna. Þeir halda áfram að láta reyna á hvar mörkin eru.
Simmi of upptekinn að finna ný orð yfir að vera nýnasisti til að mæta í vinnuna.