Tómas ha messo in moto una sequenza di eventi che “hanno portato direttamente e prevedibilmente alla morte del paziente” – RÚV.is

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-21-tomas-setti-af-stad-atburdaras-sem-leiddi-med-beinum-og-fyrirsjaanlegum-haetti-til-thess-ad-sjuklingurinn-lest-476135

    di birkir

    Share.

    4 commenti

    1. >Í dómnum segir að Tómas hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi í starfi, brotið lög um reglur um sjúkraskrár og farið alvarlega gegn þágildandi læknalögum. Hann hafi einnig farið fram hjá yfirmönnum sínum vísvitandi.
      >
      >„Hann tók þátt í ferlinu af faglegum hvata og tók sjálfur þátt í tilraunaaðgerðinni. Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést,“ segir í dómnum.

      >Það taldist einnig til ámælisverðrar háttsemi að Tómas beitti sér fyrir því að Andemariam kæmi fram á málþingi Háskóla Íslands árið 2012 til að tryggja jákvæða fjölmiðlaumfjöllun. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir að Andemariam hafi skömmu áður verið mjög veikur, hóstað blóði og þurft bráðainngrip í Svíþjóð.
      >
      >„Tómas notaði þannig dauðvona sjúkling, sem var í viðkvæmri stöðu og algerlega hóður honum um eftirmeðferð, í auglýsingaskyni,“ segir í niðurstöðu dómsins.

    2. Það voru 774 milljónir í skaðabætur í Guðmundar og Geirfinnsmálinu sem setur ákveðið viðmið.

      Ætli þetta fari yfir milljarðinn?

    3. Anchises on

      Þessi grein er svakaleg. Fölsun tilvísunarinnar grefur alveg undan allri mögulegri málsvörn. Að láta sjúklinginn koma fram á málþingi hljómar bara eins og eitthvað sem illmenni í teiknimynd myndi gera.

    Leave A Reply