Share.

    9 commenti

    1. Ég tel bara enga þörf á sjálfskeyrandi bílum. Við smá google sýnist mér þeir valda fleiri slysum en mannstýrðir bílar í Bandaríkjunum*, alveg tvöfalt fleiri slysum og hér erum við með milljónir ferðamanna á vegunum á ári hverju, allskonar aksturskilyrði og áfram mætti líklega telja upp hætturnar.

      Eins þykir mér ógnvænleg þróun að ætla bara að útvista allri hugsun. Gervigreindin sér um að hugsa fyrir okkur og bíllinn keyrir fyrir okkur. Hvað nákvæmlega ætlum við að gera sjálf?

      Kannski er ég bara gömul og súr, en ég er ekki hrifin af þessari þróun.

      [*heimild: Consumer Shield.](https://www.consumershield.com/articles/self-driving-car-accidents-trends)

    2. orugglega on

      Mig langar ekki til að taka þátt í beta prófunum á hugbúnaði sem gæti leikandi drepið mig.

    3. Einn1Tveir2 on

      “Sjálfkeyrandi” bílar, en er ekki þriðji aðili að fylgjast með bílunum í real time og þarf ítrekað að taka yfir í “kröfumiklum” aðstæðum?

      Og er það komið á hreint hver ber ábyrgð þegar þeir á endanum drepa eða valda stórskaða?

    4. treysti ekki Vegagerðinni, það er varla hægt að hafa línurnar málaðar

      bíllinn minn heldur því reglulega fram að ég sé að keyra út af akrein og rykkir smá í stýrið, sérstaklega slæmt við úrkomu. ef hann fengi að ráða myndi hann sennilega taka þá ákvörðun að keyra tvisvar í veg fyrir umferð í hvert skipti sem ég fer út úr bænum ef ég héldi honum ekki frá því

    5. dansk-reddit-er-lort on

      Einu sjálfkeyrandi bílar sem ég er til í eru bílar sem eru í alvöru sjálfkeyrandi, og þá gjarnan 99.99% öryggir eða eitthvað svoleiðis. Þetta tesla (supervised) FSD er hálfgert runk. Maður getur ekki bara slappað af og þarf alltaf að vera að fylgjast með.. og þá er enginn ástæða til þess að vera að nota þetta. Cruise control / lane following er sweet spottið – maður þarf ennþá að fylgjast með, en það auðveldar keyrslu svo mikið á t.d. þjóðvegunum hér í Danmörku, og ef ég er að keyra eitthvað langt, þar sem mig langar að hafa tækni til þess að auðvelda mér ferðalagið, þá er cruise control nánast að gera það sama á þjóðvegunum sem FSD væri að gera hvort eð er.

    6. Don_Ozwald on

      hjartanlega til hamingju með að hafa náð að læra að rúlla r-inu, það er ekki auðvelt, og mjög vel gert. En. Þú ert rúlla því talsvert yfir hámarkshraðanum, kannski lækka það niður um svona 2-3 styrkleikastig? Kannski bara fá Waymo til þess að rúlla r-inu fyrir þig?

    7. reynir_th on

      Sjálfkeyrandi bílar eru rándýr og gífurlega flókin lausn á vandamáli sem er löngu búið að leysa. Ef þig langar ekki að keyra þá notarðu almenningssamgöngur. 

    Leave A Reply