Share.

    2 commenti

    1. logos123 on

      > Og auðvitað hafa foreldrar skólabarna skoðun á skólamálum. Menntamálin eru okkar allra. Það er þess vegna á misskilningi byggt hjá menntamálaráðherra að leggja málin upp þannig að það séu nánast bara skólarnir sem megi taka til máls eða að þeir sem séu ekki sammála ríkjandi stefnu í einu og öllu séu að ráðast að skólunum.

      > Kennarar eiga þvert á móti skilið að um þessa stöðu sé rætt og að brugðist sé við. Ekki með samtali um allt sé í sóma eða tali um að svona mæling segi ekki alla söguna. Það vita það í sjálfu sér allir en það breytir því t.d. ekki hver niðurstaðan um læsi er. Og ekki heldur með því að foreldrar bendi á skólana um stöðuna og skólarnir bendi á foreldrana. Sú umræða gagnast engum.

      Held að Þorbjörg hafi hitt naglan á höfuðið, þ.e. að ástæða þess hvað þessi mál eru svona mikið á milli tannana á fólki núna eru þessi hrokafullu viðbrögð frá yfirvöldum og Kennarasambandinu. Það er löngu orðið augljóst að menntakerfið er ekki að standa sig, en svarið frá þeim sem þar ráða er að segja að allt sé bara í góðu lagi, og að við eigum ekki að hafa neina skoðun á þessu. Að sjálfsögðu bregst fólk illa við slíkum viðbrögðum.

    Leave A Reply