Gli islandesi non vogliono accettare i lavori

    https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/05/islendingar_vilja_ekki_thiggja_storfin/?utm_medium=Social&utm_campaign=mbl.is&utm_source=Facebook&fbclid=IwAR0nxHAlmpaZ3Zg5Ri6cRjFAuZfniAUN8-BCGVbBjI4mdmp_Jv6n2bQfcNU_aem_AWkYCYNXdlpdarecVD-l2koYmvZdNrnX3ipU_dEuI_X9ut5HeahHHDwac6rd-TIKXilcz9SQJ5y2rrIpRgbNTARX#Echobox=1712310478

    di stofugluggi

    Share.

    8 commenti

    1. brosusfrfr on

      Áhugavert að ekkert er minnst á launin í þessari grein…

      Edit:

      > Verktaki sem Morg­un­blaðið ræddi við hafði sömu sögu að segja. Hann væri með um 150 manns í vinnu við lík­am­leg störf en í þeim hópi væri ekki ein­asti Íslend­ing­ur. „Ég þoli ekki þetta aum­ingja­upp­eldi sem er í dag. Menn láta sig hverfa í veik­inda­leyfi og kalla það kuln­un. Það er því orðið erfitt að fá fólk í vinnu. Ég er með marga út­lend­inga því að það er ekk­ert væl þar,“ sagði verktak­inn.

      Lol, hvílík ráðgáta hvers vegna þessi indælis einstaklingur finnur ekki starfsmenn sem hafa aðra valmöguleika en að vinna fyrir hann.

    2. Erum við bara að flytja inn alla ruglræðu sem við getum mögulega fundið í bandarískum kúltúr?

      Fólk vill vinna í sínum verkefnum, ekki í því að auðga þriðja aðila. Fólk er tilbúið að auðga þriðja aðila ef sú vinna auðveldar þeim að vinna í sínum verkefnum. Í mörgum tilfellum gerir vinna það ekki, heldur tekur yfir allt líf fólks, heimtar yfirvinnu umfram átta tíma og bíður ekki upp á neina framtíðarmöguleika.

      Ef þú getur ekki fengið fólk til að vinna fyrir þig, þá ert þú vandamálið. Enginn á að taka á sig ömurleg lífsgæði til að niðurgreiða reksturinn á fyrirtækinu þínu. Þú þarft bara að fara að vinna fyrir fyrirtæki annara sem geta staðið undir eigin rekstri ef fyrirtækið þitt getur ekki greitt mannsæmandi laun – og það er ekkert að því… er það?

    3. VarRuglukollur on

      Ísland er að breytast í söguna um liltu gulu hænuna… og við erum ekki hænan.

      Framleiðum ekkert sjálf, flytjum allt inn. Verðum brjáluð ef það á að flytja auðlindir okkar út (t.d. móberg eða sandinn við Vík), en flytjum auðvitað inn málma, olíu og allskonar auðlindir annarra þjóða. Viljum láta loka álverum af því að “vondu álfyrirtækin nota svo mikið rafmagn” en viljum samt auðvitað nota ál í flugvélar til að fljúga til Tene 3x á ári og keyra um á rafbílunum okkar, aðrir eiga samt bara að nota sína raforku og auðlindir í að framleiða það fyrir okkur.

      Viljum þægilega innivinnu svo við getum kommentað á feisbúkk og reddit og vorkennum sjálfum okkur rosalega mikið fyrir að búa við bestu lífsgæði sem nokkuð samfélag hefur upplifað í mannkynssögunni á meðan við látum innflytjendur um líkamlegu vinnuna en viljum svo auðvitað njóta afraksturs þess erfiðis.

      Mikið til í þessu hjá þessum verkstæðisformanni. Það á enginn sjálfkrafa rétt á fríðindum, það þarf að vinna fyrir þeim, það þarf að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins. Rosalega margir sem virðast vera orðnir sáttir með að vera farþegar/sníkjudýr á samborgurum sínum.

    4. remulean on

      Merkilegt nokk ef þú borgar vel og kemur vel fram við starfsfólkið þitt þá áttu ekki í vandamálum við að finna starfsfólk.

    5. > Það sem skipt­ir þá mestu máli í dag er hvað þeir fá mik­il fríðindi og svo­leiðis en ekki hvort þeir þurfa að vinna.

      Já, skrýtið að fólk vilji fá sem mest fyrir sem minnst… Hvernig sagði gæjinn þetta bara án þess að fatta hversu heimskulega þetta hljómar?

    Leave A Reply