
Questa immagine illustra il modo in cui parlano i socialisti, i membri del partito di centro e il partito democratico.
I cosiddetti “attivisti per la pace” parlano come se fosse possibile negoziare la pace, come se non fosse mai stato tentato prima. La richiesta della Russia è stata che tutti gli altri si arrendessero, così da poter vincere.
Non lasciamoci ingannare quando partiti e politici parlano così. Putin si comporta esattamente come gli altri dittatori, come ad esempio Hitler. Ha invaso la Georgia nel 2008, la Crimea nel 2014 e poi tutta l’Ucraina nel 2022. Il problema non è solo Putin, ma anche l’Occidente, che spesso ha deluso l’Ucraina, come nel 2014. L’Occidente è stato troppo favorevole a Putin.
https://i.redd.it/c86y5no0385e1.jpeg
di numix90
5 commenti
Mig langar að bæta einu við þetta: Friðarsamningar eða vopnahlé sem fela ekki í sér einhverskonar öryggisloforð frá vesturlöndum/NATO, svosem innganga í NATO eða herstöðvar frá NATO löndum innan Úkraínu, væru dauðadómur yfir Úkraínu.
Þá væri nefninlega ekkert því til fyrirstöðu að Rússland einfaldlega tæki sér hlé, endurskipulegði og enduruppbyggði herinn sinn, og reyndi aftur eftir einhverja mánuði eða ár.
Og á þeim tíma myndi fjárhagslegur og hergagnastuðningur við Úkraínu þorna upp, sem myndi þýða að á meðan Rússneska hernum yxi ásmeginn, myndi sá Úkraínski drabbast niður þar sem sendingar frá vesturlöndum myndu hrynja og Úkraínskt samfélag myndi takast á við einhverja djúpstæðustu og alvarlegustu kreppu sem sögur fara af í rústum hálfsprengds lands.
Einnig myndi slíkur samningur þýða að borgaralegt samfélag Úkraínu myndi ekki vera endurbyggt; Enginn myndi vilja fjárfesta í enduruppbyggingu landsins, og fáir Úkraínskir flóttamenn kæmu heim, ef það væri viðbúið að Rússar myndu gera aðra innrás í náinni framtíð.
Jafnvel þó stuðningur við Úkraínu myndi halda áfram í slíku vopnahléi, þá myndi valdajafnvægið milli herjanna stóraukast; Rússneski herinn hefur mun meiri getu til þess að endurnýja vopnabúnað og mannafla. Valdajafnvægið milli þessara herja hefur staðið í stað á meðan stríðið er í gangi, einfaldlega vegna þess að mannfall og útbúnaðartap Rússa hefur verið mun meira en Úkraínumanna. Ef bardagar myndu stöðvast, þá myndi það ekki eiga við lengur, og valdamismunur þeirra stóraukast.
Allra versta sviðsmyndin er sú þar sem engir friðarsamningar eru kláraðir, heldur einungis vopnahlé og stríðið fryst við núverandi víglínu. Rússar gætu þá endurbyggt her sinn, og einfaldlega kúgað Úkraínu til að gefa eftir sífellt meira þrúgandi kröfum í samningarviðræðum um endanlega friðarsamninga, þar sem Úkraína yrði sífellt varnarlausari. Sú sviðsmynd gæti endað í endanlegri kúgun Úkraínu án þess að Rússar þyrftu einu sinni að há einn einasta bardaga til viðbótar.
Þetta eru aldeilis ekki friðarsinnar. Jafnvel harðasti pasifisti myndi segja þér að sjálfsvörn sé réttmæt. Þvert á móti eru þetta beinlínis stuðningsmenn innrásar.
Raunverulegur friður er unninn. Ef rússasleikjurnar ná sínu fram og Úkraína er þvinguð í uppgjöf, spyrjið þá íbúa hvað þeim finnst um “friðinn” þegar landið er hreinsað af lýðveldissinnum og stuðningsmönnum fyrri ríkisstjórnar (svokallað “””denazification”””).
Slava Ukraini # NAFO
Ég spyr: Hver hér myndi senda pabba sinn og bróður á víglínuna vegna þess að Putin ætlar sér að taka yfir Austurland?
Umfram það er þetta bara lýsandi fyrir það hvernig pólitískir jólasveinar á reddit hugsa. Það hefði allt annað verið betra en stríð.
Það sorglega er að það er lítið í stöðunni lengur heldur en að semja frið. Evrópa (og við meðtalin) ættum að skammast okkar fyrir seinleika í alvöru stuðning við Úkraínu. Núna eru þeir svo uppiskroppa með mannafla, af því að það er búið að senda þá inn í hakkavélina með ábótavanan búnað, að þeir eiga ekki séns að taka aftur það sem þeir eru búnir að tapa.
Bókstaflega það eina sem gæti bjargað þeim núna eru hermenn frá öðrum löndum, en mér finnst hæpið að þeir verði sendir.