Share.

    4 commenti

    1. ultr4violence on

      Fint veður og gott skjól hérna á svölunum hjá mér, snúa í norðurátt. Er að spá í að kíkja út með bók.

    2. Brolafsky on

      Það verður lítið spilað í dag og á morgun ef fokking wifi-ið fýkur út á ballarhaf.

    3. [Vaktin hjá Vísi](https://www.visir.is/g/20252684784d/vaktin-aftakaverdur-gengur-yfir-landid)

      [Fréttavakt RÚV](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)

      mbl.is – [Forsíða](https://www.mbl.is/frettir/)

      Vegagerðin – [Umferðin.is](https://umferdin.is/)

      Veðurstofa Íslands – [Veður.is](https://vedur.is)

      **12:06** – Vísir – **[Skellur á með látum, versnar hratt og hviður jafnvel yfir 50 m/s](https://www.visir.is/g/20252684730d/skellur-a-med-latum-versnar-hratt-og-hvidur-jafnvel-yfir-50-m-s)**.

      * Nær öllu millilandaflugi hefur verið aflýst.
      * Vegir í öllum landshlutum eru á óvissustigi.
      * Veðurfræðingur segir óveðrið munu skella á með miklum látum.
      * Spáir hviðum upp undir 50 m/s, „staðbundið á norðurlandi og ekki síður fyrir austan“.
      * Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja börn sín í skólann.
      * Vegir um allt land á óvissustigi, sem þýðir að þeim getur verið lokað með skömmum fyrirvara.
      * Óvissustig tekur gildi á Reykjanesbraut, Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði ýmist klukkan 12 og 13.
      * Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað
      * [Samkvæmt RÚV hefur Öxnadalsheiði verið opnuð frá 12 og stefnt að halda veginum opnum til klukkan 14](https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163).

      **12:50** – RÚV – **[Samhæfingarmiðstöð Almannavarna virkjuð klukkan tvö](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**

      **12:50** – RÚV – **[Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**

      * Óvissustig Almannavarna gildir frá og með klukkan 12 í dag og gildir þar til veðrið gengur niður á morgun.
      * Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að ekkert ferðaveður sé á landinu næsta sólarhringinn og fólk er beðið að fylgjast vel með á vef [Veðurstofunnar](https://vedur.is).

      **13:34** – mbl.is – **[Fylgstu með óveðrinu ganga yfir](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/fylgstu_med_ovedrinu_ganga_yfir/) á gagnvirku korti**

      **13:41** – mbl.is – **[Rauðar viðvaranir gefnar út](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/05/raudar_vidvaranir_gefnar_ut/)**

      >* Rauðar viðvar­an­ir hafa nú verið gefn­ar út fyr­ir meiri­hluta lands­ins vegna þess ofsa­veðurs sem spáð er á næsta sól­ar­hring.
      >* „Það verður fært yfir á rautt síðdeg­is og fram á kvöld. Svo mun draga úr veðrinu um tíma í nótt,“ seg­ir Har­ald­ur Ei­ríks­son, verður­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands.
      >* „Svo verður end­ur­tekið efni aft­ur í fyrra­málið. Klukk­an 8 í fyrra­málið verður þetta komið aft­ur um mest­allt land. Seinni part­inn á morg­un mun veðrinu slota.“

      **13:45** – Vísir – **[Gæti minnt á óveðrið 2015](https://www.visir.is/g/20252684113d/appel-sinu-gular-vidvaranir-gaeti-minnt-a-o-vedrid-2015)**

      >Óli Þór Árnason veðurfræðingur hjá Veðurstofunni tjáði fréttastofu í gær að óveðrið fram undan gæti minnt á vonskuveðrið 2015. Hvernig var það velta lesendur fyrir sér? Fjölda myndbanda frá veðrinu sem olli meðal annars miklum vatnselg í Mosfellsbæ og víðar má sjá [í fréttinni](https://www.visir.is/g/20252684113d/appel-sinu-gular-vidvaranir-gaeti-minnt-a-o-vedrid-2015).

      **13:47** – RÚV – **[Rauð viðvörun á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 16 til 19 í dag.](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**

      **13:51** – RÚV – **[Rauðar viðvaranir um nánast allt land í dag](https://ruv.is/frettir/innlent/2025-02-05-ofsavedri-spad-a-landinu-i-dag-almannavarnir-lysa-yfir-ovissustigi-435163)**.

      > * Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland, Strandir og Norðurland vestra frá klukkan 16-20 í dag.
      > * Á Faxaflóa og Breiðafirði eru rauðar veðurviðvaranir í gildi frá klukkan 16-19.
      > * Á Norðurlandi eystra taka rauðar veðurviðvaranir gildi klukkan 17 og eru í gildi til klukkan 22.
      > * Á Austurlandi að Glettingi verða rauðar viðvaranir í gildi frá klukkan 18 og til klukkan 4, aðfararnótt fimmtudags.
      > * Á Miðhálendinu, Austfjörðum og Suðausturlandi taka rauðar viðvaranir gildi klukkan 20 í kvöld og gilda fram yfir miðnætti.

    Leave A Reply