Share.

    3 commenti

    1. > Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti er sagður hafa gefið það í skyn að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti ásæl­ist jafn­vel Ísland líkt og hann ásæl­ist Græn­land í ræðu sem Pútín hélt á Norður­slóðaráðstefnu í Murm­ansk.
      >
      > Í ræðunni er Pútín sagður hafa varið mest­um tíma í að fara yfir áhuga Trump á að yf­ir­taka Græn­land en Ísland ber einnig á góma.
      >
      > Þetta kem­ur fram í [frétt Daily Mail](https://www.dailymail.co.uk/news/article-14544213/Putin-threatens-Arctic-WAR-says-United-States-taking-Greenland-NATO-seen-possible-foothold-long-time.html) um málið. Seg­ir þar að Pútín hafi orð á því að við fyrstu sýn megi ætla að áhugi Trumps á Græn­landi sé nýr af nál­inni, en seg­ir hann að Banda­ríkja­menn hafi haft áhuga á eyj­unni allt frá 1860 og eigi málið sér því rík­ar sögu­leg­ar ræt­ur. Nefn­ir Pútín einnig Ísland á nafn og seg­ir að Banda­ríkja­menn hafi á 19. öld haft áhuga á því að inn­lima Ísland líkt og Græn­land í heimsveldið. Þau áform hafi hins veg­ar ekki hlotið náð hjá þing­inu á þeim tíma.

    2. Calcutec_1 on

      er ennþá að bíða eftir að þeir landar sem að hafa kallað þessa þráhyggju Trumps um grænland bara grín eða innantóma stæla hætti að hlægja.

    3. Ég bjóst aldrei við því að þessu unglingaþráhyggja mín um að lifa á áhugaverðum tímum yrði að raunveruleika – en hérna erum við.

      En auðvitað hafa Bandaríkin áhuga á yfirráðum hérna. Við unnum sjálfstæði okkar af því Bandaríkin höfðu áhuga á yfirráðum hérna, í bland við að vilja beita mjúki valdi frekar en hörðu. Nú virðist tími mjúka valdsins liðinn – allavegna sem stendur – en Bandaríkin hafa enn ágóða af yfirráðum hérna. Ergó það eina sem breytist er nálgunin og hún er að breytast í hörku.

      Mig langar aftur til fortíðarinnar þar sem sagan var dauð.

    Leave A Reply