Share.

    2 commenti

    1. KristinnEs on

      “Ég veit ekkert hvaðan þessar myndir koma”
      > Fylgir listamannium á netinu

      “Ég er ekki að selja myndirnar”
      > Er með til sölu á síðuni sinni.

      “Líkir eftir”
      > copy paste

      Jahá.

    2. algjörlega ótengt þessu en fyrst við erum að tala um að gera afrit í góðri trú en í trássi við reglur, þá eru ótrúlega fáir sem vita hvað sjálfsritstuldur er, og að þau geti lent í vandræðum í námi og jafnvel síðar

      (sérstaklega eftir útskrift ef þau fara í pólitík eða á einhvern starfsvettvang þar sem gráðan skiptir einhverjum einhverju máli, þótt það sé ekki nema blaðamanni sem fær borgað fyrir að grafa þannig upp)

      Úr Handbók um heimildaskráningu samkvæmt APA staðlinum frá Háskólanum á Bifröst:

      >**Það að notast við eigið efni sem hefur áður verið gefið út líkt og það sé frumverk (verk sem verið er að gefa út í fyrsta skipti) er sjálfsritstuldur. Þetta á einnig við þegar notast er við verkefni sem áður hefur verið skilað inn í námskeiði.**
      >
      >Ef að nemandi vill nota verkefni sem unnin voru í námskeiðum í lokaritgerð þarf að ræða það sérstaklega við leiðbeinanda og fylgja settum reglum skólans. Undantekning frá sjálfsritstuldi er þegar verk sem hefur fengið litla dreifingu er dreift á stærri skala. Sem dæmi má nefna mastersritgerðir eða doktorsritgerðir sem síðar eru gefnar út í fræðiritum að hluta eða í heild sinni. Þá er nægjanlegt að gefa til kynna að verkið sé byggt á viðkomandi ritgerð í athugasemdum höfundar (e. author note).

      Úr Handbók meistaranema/Handbók um meistaranám frá Háskóla Íslands:

      >Minnt er á að í reglum HÍ nr. 569/2009 segir í 54. grein: „Stúdentum er algerlega óheimilt að nýta sér hugverk annarra í ritgerðum og verkefnum, nema heimilda sé getið í samræmi við viðurkennd fræðileg vinnubrögð.“ Þetta á við hvort sem um beinar tilvitnanir eða endursögn er að ræða og óháð því hvaðan efnið er fengið (þ.m.t. af internetinu). Nemendur skulu gæta þess að greina skýrt á milli eigin orða og annarra. **Ef grunur leikur á ritstuldi (þ.m.t. sjálfsritstuldi/óheimil endurnot eigin verka)** þá er málinu vísað fyrst til deildarforseta sem tekur ákvörðun um hvort um brot nemanda sé að ræða og síðan sviðsforseta sem tekur ákvörðun um agaviðurlög s.s. áminning eða brottvikning úr skóla, sbr. 51. gr. reglnanna og 3. mgr. 19. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.

    Leave A Reply