Quali aziende sono fuggite dalla città in campagna per le tasse? Niente? Sta parlando di Kopavogur, Gardabaer, Hafnarfjörður e MOSO? Deve iniziare a combinare l’area metropolitana in una …

    Ma non posso nominare una grande azienda che ha spostato le sue operazioni ad Akranes, Selfoss, Hveragerði, Borgarnes o Reykjanesbær.

    https://www.visir.is/g/20252738541d/storfyrirtaeki-flyi-borgina-vegna-skatta

    di No-Aside3650

    Share.

    9 commenti

    1. DipshitCaddy on

      Er svo sem ekki bara fínt að það séu ekki öll fyrirtæki landsins staðsett á höfuðborgarsvæðinu?

    2. wheezierAlloy on

      Það er samt alveg satt að það sé verið að þrengja að fyrirtækjum með fyrirhugaðri Ártúnsbyggð

    3. Glaesilegur on

      Þetta eru borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar, augljóslega er verið að tala um Hafnafjörð, Kópavog e.t.c.

    4. Engin gögn nefnd, ekkert hægt að sannreyna – líklegast áróður frá SA sem kjörnir fulltrúar eru að taka undir af því við erum ekki með ábyrgari stjórnsýslumenningu en svo jafnvel þrátt fyrir að [Rannsóknarskýrsla Alþingis](https://www.rna.is/eldri-nefndir/addragandi-og-orsakir-falls-islensku-bankanna-2008/skyrsla-nefndarinnar/) hafi útslistað óeðlilegri samvinnu milli stjórnmála og atvinnulífsins sem einni af meigin ástæðu hrunsins.

      En við hverju eru að búast af íslenska teboðsflokknum – í raun engu nema meira af þessu eftir því sem Sjallar finna sjálfan sig meira og meira utan gátta í íslenskri pólitík.

      Kjörnir fulltrúar þurfa að þora að standa með eigin skoðunum og taktu dæmi sem hægt er að sannreyna frekar en að búa til rifrildi um algerlega óstaðhæfanlega skoðun sem felst í orðunum *”mörg stærstu fyrirtæki landsins hafi flúið borgina undanfarin ár vegna hæstu fasteignaskatta á höfuðborgarsvæðinu.”*

    5. Foldfish on

      Ef eithvað þá er þetta öfugt með flest stór fyrirtæki landsbygðarinnar að flytja sig til Reykjavíkur en það er vandamál sem hefur staðið yfir í fleiri áratugi

    6. TRAIANVS on

      Það er fín þumalputtaregla að taka engu sem Hildur Björns segir alvarlega.

    7. AngryVolcano on

      Áhugavert að hún nefnir ekki eitt einasta fyrirtæki. Næstum eins og þetta sé bara þvæla?

      Nei það getur ekki verið. Ekki frá Sjálfstæðisflokknum.

    8. richard_bale on

      Það er frábær þróun fyrir höfuðborgarsvæðið og þjóðina sem heild að aragrúi af fyrirtækjum færi sig annað til að það séu þá fjölbreyttari áfangastaðir sem fólk sækir á morgnanna.

      Ótrúlega fyndið og mislukkað að benda á að tekjur borgarinnar stóraukist ár eftir ár að raunvirði, þrátt fyrir að önnur sveitarfélög lækki sig jafnvel, á meðan að þú talar um það að fyrirtæki færi sig sem vandamál.. þegar það er bara vandamál ef þau skilja eftir sig ónotað húsnæði eða ónotað land–eða í versta falli færa sig svo ótrúlega langt að starfsfólk getur ekki lengur hugsað sér að búa í borginni og vinna þar ennþá.

      https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/05/15/hestamenn_osattir_og_aflysa_midbaejarreid/

      Samhliða fasteignaskattavælinu er viðburðargjaldavæl í gangi. Ég vil ekki vera neinn samsæriskenningamaður en það er af tilviljun Áslaug Arna þáverandi ráðherra sem leiðir þarna ferðina með þessu fólki (man einhver hvaða flokki hún er í?), og af tilviljun virðist stjórn og umgjörð Landssambands hestamannafélaga gjörsamlega stútfull af kvótafjölskyldufólki og þvíumlíku. Sonur fyrrverandi forstjóra Útgerðarfélags Akureyringa hf. og fleira svoleiðis stemming.

      Er þessi óútskýranlega ákvörðun að ætla að aflýsa því sem þeim finnst sjálfum svona ótrúlega mikilvægur atburður vegna svo lágrar upphæðar mögulega **gegnsær pólitískur gjörningur**? Hver veit!

    9. netnotandi1 on

      Mér finnst þessi stjórnarandstaða snúa út úr og segja bara það sem hentar þeim hverju sinni. Tökum sem dæmi Hildi Sverrisdóttur í morgunútvarpinu í gær, hún er eins og biluð plata. Hún tönglast á máli tengdu bættum kjörum þeirra verst settu og setur upp dæmið eins og lífeyrissjoðir muni leggjast á hliðina við að taka þátt í því og fólk hagnist meira á því að vera á atvinnuleysisbótum frekar en að vinna. Ragnar debunkerar það auðveldlega og restina af viðtalinu situr hún þarna og hefur ekkert meira að segja og þess í stað gerir ekkert annað en að grípa fram í þegar Ragnar á orðið. Ótrúlega ómerkilegt og það er svo augljóst að þessi peð eru að vinna með eð fyrirfram ákveðið script sem er búið að prenta út fyrlr þau.

    Leave A Reply