>Lundinn stakk sér þó ekki þar niður af helberri tilviljun, því eins og lesendum Morgunblaðsins er e.t.v. í fersku minni settu ferðaþjónustufyrirtæki við utanverðan Eyjafjörð niður 150 plastlunda á þremur stöðum á Hrísey vorið 2019 í von um að lifandi lundar vildu setjast þar að.
> Tálfuglarnir virðast hafa dugað til því myndast hefur lundabyggð á Hrísey austanverðri.
> „Þetta er fyrsta árið sem við tökum eftir því að lundinn sé byrjaður að verpa, en það er ekki ósennilegt að hann hafi verið byrjaður eitthvað í fyrra, miðað við fjöldann sem er þarna,“ segir Árni Halldórsson hjá Whale Watching Hauganes.
>„Við ræddum þetta nokkrir félagar í þessum bransa og ég kom fram með þá hugmynd að láta útbúa tálfugla erlendis. Í kjölfarið var ákveðið að senda uppstoppaðan lunda til Kína og biðja um að gerð yrði eftirlíking úr plasti og hún fjöldaframleidd. Og þetta varð úr.
stórsniðugt framtak. verður hægt að narra lundann víðar með þessu?
2 commenti

Ætli hann fái að vera í friði þarna?