Non lo notano più persone? Penso che diventerà troppo comune per gli autori islandesi utilizzare l’intelligenza artificiale per preparare illustrazioni per i libri per bambini.

    Questa è una specie di truffa secondo me, molto pigra e monotona.

    https://www.reddit.com/gallery/1p7ywfl

    di snirdi

    Share.

    9 commenti

    1. misssplunker on

      Tók eftir Kvíðapúkanum og seinustu bókinni

      Sá strax að stelpan og mamman voru eitthvað skrítnar og svo varð þetta bara verra og verra!

      Kvíðapúkinn líka svakalegur, ein mynd þar sem bagnsinn er í fókus en strákurinn úr fókus. Ein mynd þar sem það eru svona þrjár eða fjórar áferðir á mismunandi hlutum á sömu mynd!

      Svo er ein mynd þar sem fjölskyldan er í sundi og mamman er í kjól (?) og stelpan í síðermabol en pabbinn má vera ber að ofan

    2. Fatta ekki þennan pissugula lit alltaf, eins og á seinustu myndinni. Lítur illa út og hringir viðrörunarbjöllum að þetta sé AI. Ég hef alveg fiktað með að búa til myndir með AI og það er frekar lítið mál að gera hluti án þessa pissugula lits. Fólkið sem dælir þessu út nennir ekki einu sinni að læra á AI.

    3. Morvenn-Vahl on

      Því miður er alltof mikið af fólki sem finnst sjálfsagt að nota AI list jafnvel þó hún sé að öllu leyti stolin frá fólki sem hefur eytt árum ef ekki áratugum í að þjálfa list sína. Því þeim finnst þetta svo voða „sniðug” græja sem getur pungað út myndum án þess að þau ráðfæri sig við alvöru listamenn.

    4. [þróunarsjóður námsgagna](https://www.rannis.is/frettir/uthlutun-ur-throunarsjodi-namsgagna-2025) og [íslenskusjóður háskóla íslands](https://i.imgur.com/McV9Re6.png) er að dæla peningum í verkefni eins og [þetta](https://vasaskrimsli.is/um-verkefnid/)

      edit: sé að þau voru að bæta við fyrirvara, “það er sko alls ekki ætlunin að brjóta á höfundarrétti”, sem mér finnst líklegt að lögmenn Nintendo taki sérstakt tillit til enda þekktir fyrir gjafmildi

      >Fyrirvari
      >
      >Pokémon © 2002-2025 Pokémon. © 1995-2025 Nintendo/Creatures Inc./GAME FREAK inc. TM, ® og upprunaleg nöfn Pokémon skrímslanna eru skrásett vörumerki og höfundaréttur í eigu Nintendo.
      >
      >Engin brot á höfundarrétti eða vörumerkjum eru ætluð við notkun á Pokémon efni á vasaskrimsli.is, í prenti eða í öðru tengdu efni.

    Leave A Reply