> Klukkan 00:39 í nótt barst útkall á allar björgunarsveitir í Árnessýslu vegna ferðamanns sem hafði fest bíl sinn á Nesjavallaleið og hafið göngu frá bílnum.
>
> Tveir félagar sveitarinnar svöruðu kallinu og héldu á vettvang á Tinna 2.
>
> Hafði hann gengið um 5 kílómetra frá bílnum og orðinn verulega kaldur þar sem hann beið í skjóli við hitaveitulögnina meðfram veginum þegar hann fannst.
>
> Var honum komið fyrir í bíl sveitarinnar og ekið sem leið lá til baka yfir Nesjavallaleið og á ION Hótel þar sem hann átti bókaða gistingu.
>
> Sagði hann okkur á leiðinni að hann hafði átt samskipti við Chat GPT á meðan hann beið og meðal annars spurt hvort að björgunarsveitirnar myndu finna hann.
>
> Svarið var einfalt, ” hafðu engar áhyggjur þau eru að koma og sækja þig, björgunarsveitirnar eru bestar.”
>
> Menn og tæki komin í hús 03:10
fylgir ekki sögunni hvaðan hann hafi fengið ráðlegginguna um að labba 5 kílómetra frá bílnum sínum sem hann festi í snjó um miðja nótt
Einridi on
Hér fær sá svarið sitt sem var að spá afhverju bílaleigur bönnuðu túristum að keyra bílaleigubíla uppá fjallvegi. Er Nesjavallaleið ekki lokuð allan veturinn?
2 commenti