Migliaia di islandesi sono a un passo dal perdere l’esame di guida a causa dei farmaci per l’ADHD – Vísir

    https://www.visir.is/g/20262842895d/thusundir-is-lendinga-hars-breidd-fra-thvi-ad-missa-bil-profid-ut-af-adhd-lyfjum

    di birkir

    Share.

    2 commenti

    1. >**101. gr.** *Svipting ökuréttar vegna ölvunar- eða vímuefnaaksturs.*
      >
      >Ökumaður skal ekki beittur viðurlögum skv. 1. mgr., sbr. 5. mgr., ef:
      >
      >- a. **hann hefur meðferðis við stjórn ökutækis vottorð læknis er sýnir fram á að hann sé haldinn tilteknum sjúkdómi eða ástandi og þurfi af þeim orsökum að neyta þeirra efna sem í blóði hans mælast, og**
      >
      >- b. hann sýnir fram á að hann hafi fengið útgefið lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands, sbr. lög um sjúkratryggingar, vegna neyslu þeirra efna sem í blóði hans mælast, og
      >
      >- c. sýnt er fram á, með mati læknis að undangenginni læknisskoðun sem fram fer að beiðni lögreglu í framhaldi af stöðvun ökutækis, að hann hafi verið hæfur til að stjórna ökutækinu örugglega.
      >
      >**Tekið skal fram í vottorði læknis skv. a-lið 8. mgr. að sjúklingurinn sé þrátt fyrir sjúkdóm sinn og lyfjainntöku fullkomlega fær um að stjórna ökutæki.**

      Sagt er að einn af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 18-44 ára taki ADHD lyf daglega. Get gert ráð fyrir því að sumir þeirra séu hér.

      Eruð þið með læknisvottorð og kemur allt eftirfarandi fram á því, þ.e. að þið séuð: (a) með ADHD, (b) á tilteknum lyfjum við því, (c) með virkt lyfjaskírteini fyrir lyfinu, og (d) fullkomlega fær um að stjórna ökutæki þrátt fyrir ofangreinda liði?

    2. Mr_bushwookie on

      Semsagt að taka lyfið án þess að mega það og keyra bíl?

      Auðvitað ætti að svipta þau réttindum

    Leave A Reply