“Ef tilvonandi borgarfulltrúar ætla að leysa umtalaðan bílastæðavanda miðbæjarins með því að endurheimta 18 stæði, þá er ég ekki bjartsýnn á þeirra lausnir við stærri verkefnum borgarinnar.”
Fyrir utan það hvað það er hlægilegt og hjákátlegt að gera jafn mikið mál úr einhverjum 18 bílastæðum eins og sumir hafa gert, þá er þetta náttúrulega algjörlega metnaðarlaus tillaga ef þú heldur í alvörunni að það sé svakaleg vöntun á bílastæðum í miðbænum.
Ég er mikill fylgismaður markaðarlausna á flestum vandamálum og finnst því gráupplagt að borgin bjóði einfaldlega út uppbyggingu og rekstur nýs bílastæðahúss í miðbænum. Ef það er raunveruleg vöntun á bílastæðum þá munu einhverjir framtaksamir aðilar sjá gott til glóðarinnar og taka útboðinu fagnandi. Og ef enginn býður sig fram þá eru það einfaldlega skýr skilaboð frá markaðinum að hann telur þörfina á fleiri bílastæðum ekki brýna og þá vitum við það.
Þeir sem gráta hástöfum yfir þessum meinta skorti bílastæða gefa sig flestir út fyrir að hægri menn og markaðsþenkjandi svo ég vænti þess að þeir taki þessari skynsamlegu og hægri sinnuðu nálgun á málinu fagnandi. Það myndi hægri maðurinn ég allavega gera.
Sjálfur tel ég litlar líkur á að nokkur maður myndi vilja setja peninga í slíkt verkefni, enda er enginn hörgull á bílastæðum í miðbænum og því væri verkefnið ólíklegt til að vera arðbært, en hver veit, mögulega hef ég rangt fyrir mér og húsið yrði reist. Það er fegurðin við markaðinn, við höfum öll alls konar hugmyndir og skoðanir um hvað gæti og gæti ekki gerst, en markaðurinn er einstaklega skilvirkur í að leiða fram raunverulegar niðurstöður í stað innantómra getgáta.
2 commenti

Er miðbærinn ekki hvort eð er fyrir turista?