
Il ministro per l’infanzia è davvero venuto in difesa di Ingó Veðurguð? Siamo arrivati a un punto molto pericoloso come società se questo è il messaggio del Ministro per l’infanzia alla società.
https://www.visir.is/g/20262874896d/inga-kemur-ingo-til-varnar
di numix90
5 commenti
https://preview.redd.it/l2ibxh50asxg1.jpeg?width=767&format=pjpg&auto=webp&s=e93a01c808df1bdf11aeb82a87ea3ea7d97996f8
Jahérna.
“Inga sagði að fólk ætti ekki að haga sér eins og Ingó væri sekur án dóms.
„Var maðurinn dæmdur til dæmis? Var Ingó dæmdur fyrir eitthvað? Nei. Af hverju er þá verið að láta eins og hann sé sekur um ekkert?“ sagði Inga.
Inga vísaði í framhaldinu til laga og sakleysisreglunnar.
„Við erum með löggjöf. Og til dæmis í almennum hegningarlögum, fyrstu grein. Það eru allir saklausir uns sekt hefur verið sönnuð á viðkomandi fyrir óvilhöllum dómstólum,“ sagði Inga.”
Íslenskt réttarkerfi, frá lögreglu til dómstóla, er einstaklega lélegt í að vinna í kynferðisbrotamálum. Þetta veit hver manneskja sem hefur sett sig bara örlítið inn í þann málaflokk.
Það að ráðherra tali með þessum hætti um mann sem hefur **ítrekað** verið bendlaður við og ásakaður um nauðganir og kynferðisbrot gagnvart ungum konum sem og unglingstúlkum á barnsaldri (undir 18 er barn!) er í raun stórfurðulegt. Þarna er í besta falli mikill dómgreindarskortur á ferð eða gífurleg meðvirkni með einstaklingi sem hefur ítrekað verið bendlaður við mjög alvarlega glæpi.
Það að barnamálaráðherra hafi látið þetta úr sér er álíka skandall og þegar Robert Downey fékk uppreist æru.
Ömurlegt að ráðherra mæti í þetta hlaðvarp.
Er hún að reyna sprengja ríkisstjórnina?
Nú þarf nauðsynlega að endurskoða stöðu hennar sem ráðherra! Vá hvað ég er ánægð að eiga ekki börn a þeim tíma sem barna og menntamálaráðherra er að vernda meintan barnaníðing og nauðgara.