Share.

1 commento

  1. >„Ég var nýbúinn að skutla systur minni niður í miðbæ Reykjavíkur og var á leiðinni í Hafnarfjörð þegar ég sá bíl með hazardljósin á úti í vinstri kanti. Þá ákvað ég að stöðva bílinn minn og aðstoða ökumennina sem höfðu sprengt dekk,“ byrjar frásögn Finns en atburðarrásin tók krappa U-beygju þegar árekstur varð þar sem jeppi keyrði aftan á bílana tvo.
    >
    >„Mér finnst ekkert mál að hjálpa fólki og er vanur því sjálfur að gera við bíla. Þannig að ég fór strax að finna til tjakk og þegar það stoppaði annar konar og bauðst til að hjálpa sagðist ég geta séð um þetta bara,“ segir Finnur en fyrir slysið var hann að stefna á flugskólann.
    >
    >Finnur, sem stóð utan við bílana þegar áreksturinn varð, kastaðist heila sex metra og lenti svo harkalega á jörðinni.
    >
    >„Þegar bíllinn klessti á mig þá keyrði hann inn í hægri hlið líkamans sem endaði þannig að hægri mjöðmin, lærið og sköflungurinn brotnuðu á fimm mismunandi stöðum, lærleggurinn brotnaði alveg í tvennt og beinbrotið á sköflungnum var opið,“ segir Finnur.

    https://preview.redd.it/1f02smfqzjyg1.png?width=820&format=png&auto=webp&s=c36d80c50f502998439324454f33947b9ef9e3e5

    Þetta er alveg skelfilega ósanngjarnt að ætla sér að fara út að hjálpa einhverjum og lenda svo í aftanákeyrslu alveg berskjaldaður. Mér skilst að það séu líka fullt af lögreglumönnum sem slasast á nákvæmlega svona hátt, því fólk er stoppað eða stoppar úti á miðri götu.

    Hvað á maður að gera ef maður er að keyra á svona umferðaþungri götu og sprengir dekk? Reyna að keyra áfram og inn á hliðargötu til að komast í skjól?

    Hvað ef lögreglan ætlar að stoppa mann á svona stað, er alveg í gúddí að taka sér smá tíma til að finna öruggan stað fyrir sig og lögregluþjóninn til að stoppa heldur en á miðri Kringlumýrarbraut? Má stoppa á strætóakreinum eða sérrýmum Borgarlínunnar?

    (Þarf ég að taka bílprófið aftur fyrst ég er ekki 100% með þetta á hreinu?)

Leave A Reply