Share.

    1 commento

    1. En flugstjórar eru ólíkir flugumferðarstjórum að því leyti að hingað til hefur ríkt sátt um kjör þeirra. Það kom því flestum á óvart að frétta af klofningi innan félags flugstjóra og hér við hlið mér stendur Friðrik Oddsson, flugmaður og formaður Félags hafnfirskra flugmanna, skammstafað F.H.:

      >Segðu mér, Friðrik. Nú kynni mörgum að þykja það skrýtið að innan stéttar sem stöðugt er á ferð og flugi skuli spretta upp sérstakt fagfélag innan eins ákveðins bæjarfélags.
      >
      >>Já, nei! Við erum ekki bara að tala um fagfélag. Við erum líka að tala um félag sem er stofnað til framtíðar í flugmálum.
      >
      >En hafnfirskir flugstjórar? Hvað hafa þeir fram yfir aðra? Nú hefði maður til dæmis ekki haldið að Hafnarfjörður væri það stórt byggðarlag að það hefði þörf fyrir sérstakar flugsamgöngur.
      >
      >>Ja, það mætti nú alveg athuga það.
      >
      >Athuga hvað?
      >
      >>Ég held að það sé kominn tími á sér-hafnfirskt flugfélag. Það yrði álitlegur kostur í samgöngum innanlands, til dæmis.
      >
      >Sér-hafnfirskt flugfélag?
      >
      >>Já. Heldurðu að það væri ekki munur á að geta flogið á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur heldur en að þurfa að skrölta þetta í bíl?
      >
      >Það þyrfti að byggja flugstöð í Hafnarfirði…
      >
      >>Jú, það liggur nú í augum uppi.
      >
      >Maður þyrfti að kaupa sér flugmiða á flugvellinum, tékka inn farangurinn sinn, labba út í vél, spenna sætisólarnar, vélin þyrfti að búa sig undir flugtak, hún þyrfti að keyra síðan út á brautarenda og hefja sig til flugs.
      >
      >>🫡
      >
      >*Tíu sekúndna flugs* – til Reykjavíkur! Þá þyrfti maður að halda kyrru fyrir í sætum sínum þangað til vélin staðnæmdist fyrir utan flugstöðvarbygginguna, labba úr vélinni úti á Reykjavíkurflugvelli, inn á flugstöðina þar og bíða og bíða eftir farangrinum sínum!
      >
      >>Já. Það er nú einmitt það sem flug gengur út á.
      >
      >Já, allt tekur þetta mun lengri tíma heldur en að „skrölta þetta í bíl“ eins og þú orðaðir það.
      >
      >>Ó!
      >
      >Þar fyrir utan, þá er Reykjavíkurflugvöllur lengst úti í Skerjafirði en Hafnarfjarðarstrætó stoppar bæði í miðbænum og á Hlemmi.
      >
      >>Jú, jú.
      >
      >Auk þess sem það yrði miklu dýrara að fljúga!
      >
      >>Finnst þér þetta asnaleg hugmynd?
      >
      >JÁ! MÉR FINNST ÞAÐ!
      >
      >>Já, ég vissi að þetta mundi aldrei virka. Ég verð að fara að hætta að láta strákana spila svona með mig. Þetta gengur ekki.

    Leave A Reply