Share.

    12 commenti

    1. Af hverju er ekki hægt að tala um þessa hluti á ábyrgum nótum. Samskipti snúast um að ná sameiginlegum skilning, ekki fullnaðar sigur. Þessi dramtíska aðferðarfræði er ekki það sama og að ganga ábyrgt til verka.

      Þetta eru augljós atriði í öllum verkefnum, en þegar það kemur að pólítík þá má fullvaxið fólk allt í einu haga sér viljandi eins og fífl og það er bara *partur af sjóvinu.* En lífið mitt og ykkar hinna er ekki leiksýning og mig þyrstir í stjórnmálafólk sem tekur hlutverk sitt alvarlega og nálgast það af ábyrgð.

      Svona upphrópanir, og að nálgast samfélagsmál eins og *tilgangurinn helgi meðalið* ætti hreinlega að afskrifa fólk bæði frá stjórnmálum og frá matarborðinu. Svona á heima á barnaborði inni í eldhúsi.

    2. Aggressive_Banana708 on

      Ok, bíddu. Helstu rök hans eru semsé byggð á skýrslu sem kom út fyrir meira en 20 árum og gerði ráð fyrir að Ísland myndi ganga í ESB árið 2012?

    3. Gott að sjá að afurðastöðvarnar eru á móti inngöngu þá getum við neytendur verið vissir um að innganga er okkur í hag.

    4. >Guðni segir þessa niðurstöðu uggvænlega og beinir spurningu til forsætisráðherra: „Er það ekki skylda ríkisstjórnarinnar að setja í gang umræðu og rannsókn á því hver yrði raunveruleg staða bænda og landbúnaðarins ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu?“

      Er þetta ekki nákvæmlega það sem forsætisráðherra er að gera? Ómögulegt að vita hver yrði raunveruleg staða bænda ef við athugum ekki hvað er í boði.

      Mér finnst þessari spurningu betur beint að fyrri ríkisstjórnum.

    5. Historical_Tadpole on

      Mér finnst áhugavert við þá aðila sem elja á tilfinningablæti í baráttu á móti þessarar kosningu að sömu argument eiga alveg eins við EES aðild okkar. Skiptir vörn fullveldis bara máli ef við erum í ESB, en ekki þegar við erum atkvæðalaust að taka upp sömu reglur? Ef það yrði svona hræðilegt fyrir landbúnaður og útgerð að vera inn í ESB, er það þá ekki líka hræðilegt að vera í EES fyrir hina iðnaði okkar sem búa ekki við sérstaka varnarmúra?

      Mér þætti eiginlega best ef þessi kosning væri um að fara inn í ESB eða út úr EES, veldu

    6. NordNerdGuy on

      Er byrjað að þurrka rikið af gömlum stjórnmálamönnum vegna ESB? Er anti ESB liðið farið að skjálfa?

    7. Calcutec_1 on

      >”„Klýfur þjóðina í herðar niður. **Þarna eru miklar tilfinningar,** menn vita að það er ekkert við núverandi aðstæður að sækja í Evrópusambandið. Þetta er skuldabandalag. Við viljum verja fullveldið og Ísland og fjallkonuna okkar. Og segjum nei. „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni.“

      innanum óþverrann kemst Guðni að kjarna málsins hjá íhaldinu; þetta eru tilfinningar.

    8. Don_Ozwald on

      Þetta er svona innlegg sem segir meira um hvað þessi týpa er að gera við fjallkonuna frekar heldur en fólkið sem vill ganga í ESB.

      “Það erum bara VIÐ sem megum nauðga fjallkonunni!”

    9. Tussubangsi on

      Gaman að sjá hvað Guðna þykir ofurvænt um fjallkonuna þegar hann sjálfur gekk hvað harðast fram ásamt flokki sínum við að eyðileggja íslenska náttúru í þágu erlendra stórfyrirtækja fyrir lítið sem ekkert endurgjald á sínum tíma. Minnir að flokkssystir hans hafi réttlætt það með því að kalla landið okkar ljótt og einskis virði hvort eð er.

      Fjallkonan í hans huga stendur klárlega ekki fyrir íslenska náttúra, og heldur ekki hagsmuni þjóðarinnar, svo ég verð að álykta að hún standi fyrir að hann og vinir hans fái áfram að ákveða hverjir mega níðast á landinu.

    Leave A Reply