Share.

    11 commenti

    1. Spekingur on

      Eru þessi ljós þá verri en þau sem voru notuð áður? Eða ákváðu allir og amma þeirra að prófa nýju leiðina á sama tíma?

      Þetta er annars nokkuð vel leysanlegt fyrir Kópavog svosem. Það er hægt að bæta við aðrein og frárein frá hringtorginu áður en farið er yfir brúnna frá Kópavogi. Upphaflega hönnunin leit þannig út Kópavogsmegin.

    2. Woodpecker-Visible on

      Gera innviði sem flestir vilja? Kallast það ekki bara að hlusta á almúgan myndi ég halda.

    3. gurglingquince on

      Er þetta ekki bara skýrt dæmi um það hvað fyrrum borgarstjórn í reykjavík er drullusama um peninga og/eða tíma borgaranna. Svo skil ég ekkert í þeim í Kóp að samþykkja þetta svona.
      Hefði ekki bara verið agætt að greiða niður skuldir fyrir 8milljarða í stað þess að gera þetta?

    4. Lost_Pirate67 on

      Góðu fréttirnar eru að fólkið sem ákvað þetta hjá Reykjavíkurborg verður örugglega látið fara þegar Hildur tekur til.

    5. Vigdis1986 on

      [https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-17-bidur-folk-ad-bida-med-gagnryni-thar-til-gatnamotin-eru-tilbuin-481642](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-17-bidur-folk-ad-bida-med-gagnryni-thar-til-gatnamotin-eru-tilbuin-481642)

      >Talsverðar umferðartafir hafa orðið á gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar síðan opnað var fyrir umferð um nýja Breiðholtsbrú fyrir viku. Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum þar sem skipst er á að kenna Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ eða Vegagerðinni um tafirnar.

      >Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir ástandið tímabundið.

      >„Við erum enn þá í framkvæmd og gatnamótin eru ekki komin í fulla virkni. Það eru akreinar sem eru ekki komnar í notkun þannig að þetta er bara bráðabirgða, tímabundið ástand eins og það er í dag.“

    6. Einn1Tveir2 on

      Skil bara ekki afhverju það þarf brú, var ekki hægt að setja umferðarljósin þar sem brúin er og moka brekkuna þannig það er minni halli?

    7. Calcutec_1 on

      Myndi nù ekki taka of alvarlega einhverja gagnrýni frá Eianari litla Jesúbarni úr Miðflokknum

    8. Adventurous_Match975 on

      Flæðið væri miklu betra ef þetta væri bara aðrein og frárein, svona eins og flestir vegir eru sem tengja aðalveg við hverfin.

    9. Held að Kópavogur sé ekkert saklaus af þessari framkvæmd. Kópavogur skipulagði lóðir nánast alveg að bæjarmörkunum svo ekkert pláss var fyrir beyguafreinar Kópavogsmegin, svo þá þurfti að hafa þær Reykjavíkurmegin. Reykjavík var ekki til í það og þetta er niðurstaðan.

    Leave A Reply