Share.

    13 commenti

    1. Jón Gnarr. Maður sem ég hef mikið álit á og svo fannst mér hann svara spurningum um stuðning Íslands við Úkraínu langbest.

    2. Foxy-uwu on

      Hann Arnar Þór, það er vegna þess að hann talar fyrir aðhaldi og hefur verið sá eini sem hefur nefnt hvað varðar bókun 35 sem ég er ekki hlynt og að það færi þó allavega í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig ég tel ekki vera eðlilegt að framselja vald vegna EES og allt það án þess að hafa mikið um það að segja og ég ætla ekki að láta neina svona kannanir ráða því hvað ég kýs þar sem ég ætla að leyfa eigin sannfæringu að ráða því og svo bara sitt sýnist hverjum hvort að hún sé góð sannfæring.

    3. Here_2observe on

      Baldur. Langhæfastur þarna, með alvöru plön og alvöru svör. Hann veit hvað hann er að gera.
      En í stórum hópi af hæfu fólki þar sem næstum hver sem er af þessum efstu verður pottþett fínn forseti þá finnst mér það sem fleytir Baldri yfir aðra er hvaða þýðingu hans kjör hefði fyrir hinsegin baráttuna sem er í gífurlegu bakslagi um allan heim i dag. Yrði ánægð með flesta en Baldur hefur mest tækifæri til að gera heiminn aðeins betri bara fyrir að vera hann sjalfur sem forseti.

    4. Glaesilegur on

      Jón Gnarr. Ætla ekki að leyfa Katrínu komandi forseta að taka það frá mér.

    5. Upbeat-Pen-1631 on

      Katrínu því mér finnst hún hafa allt sem góður forseti þarf að hafa, hún er vel máli farin, alþýðleg, kann leikreglurnar í stjórnsýslunni og störfum forseta upp á 10 og er bara heilt yfir glæsileg kona og manneskja.

    6. Due-Courage897 on

      Get ekki ákveðið hvort ég á að kjósa taktískt eða þann sem ég vil (Baldur). Finnst óliklegt að hann vinni og finnst eins og þessar skoðanakannanir eyðilögðu alveg kostningarnar

    7. kiddikiddi on

      Engan, ég bý í Fjarskanistan og það er alltof mikið vesen fyrir mig að kjósa (hefði fyrir það fyrsta þurft að kjósa fyrir amk 2-3 vikum síðan).

    Leave A Reply