Það þarf að fara að gera eitthvað í þessu. Svo oft sem maður sér þessi hjól skilin eftir þvert yfir hjóla- eða göngustíga þannig að þau blokka nánast alveg umferð.
Þyrftum að geta sektað notendur sem gera þetta. Gætum t.d. sett upp kerfi þar sem hægt er að tilkynna svona, fyrirtækið sem á hjólið greiðir sekt (nema það geti sýnt fram á með gögnum að hjólið hafi verið hreyft eftir leigu) og þarf svo að sækja þann kostnað aftur á notandann.
askur on
Sekta leigurnar fyrir ólöglega lögð hjól og láta þær sjá um að elta niður viðskiptavini sína sem síðan leggja ólöglega ef þeim finnst það nógu lítið vesen fyrir nógu mikinn kostnað. Láta þá sem græða á þjónustunni sjá um að hún sé ekki að valda samfélaginu skaða, og þjónustan velur svo hvort að það sé þess virði að ýta þeim kostnaði til neytenda.
alltaf þegar ég sé svona hjól á miðjum stíg þá tek ég það og hendi því í grasið
StefanOrvarSigmundss on
Í lok ferðar á að taka mynd af þeim þannig að hægt sé að segja að þeim hafi verið lagt sæmilega. Ég held samt að enginn fari yfir þær því ég sé börn og ungling reglulega fara frá þeim án þess að skeyta um staðsetninguna. Það skiptir sennilega meira máli að halda í viðskiptin en að framfylgja reglum.
Ef notuð væru rafræn skilríki við innskráningu í stað þess að fá kóða á símanúmerið myndi vera hægt að staðfesta aldur og auðkenni þess sem tekjur hjólið. Það geta auðvitað margir deilt sama greiðslukortinu svo þau geta ekki staðfest neitt.
MoistiestNord on
Tímapunkturinn sem ég fattaði að ég næstum orðinn miðaldra var þegar ég hundskammaði 16 ára nágranna minn fyrir að sífelt vera að skilja eftir þessi fokking hopp hjól bókstaflega liggjandi á miðri gangstétt í götunni.
pihx on
Fólk er alveg ótrúlegt. Sat á bekk á Laugarvegi í blíðviðrinu í gær þar sem er göngugata. Kom stelpa á hopphjóli rétt hjá og stoppaði og skráði sig af því. Hún setti ekki standarann á heldur lét það bara detta á miðja götuna og labbaði í burtu. Kom annar vegfarandi og reysti það við og hristi hausinn.
6 commenti

Svo einföld lausn að ég er bókstaflega bara að stela henni frá [annari lítilli ferðamannaeyju](https://timesofmalta.com/article/scooter-firms-contest-over-200000-in-parking-fines.905830). Hún er samt ekki vinsæl hjá týpum sem vilja bara græða og grilla, svo það er ekki von að hún verði innleidd hér án einhverra áherslubreytinga.
alltaf þegar ég sé svona hjól á miðjum stíg þá tek ég það og hendi því í grasið
Í lok ferðar á að taka mynd af þeim þannig að hægt sé að segja að þeim hafi verið lagt sæmilega. Ég held samt að enginn fari yfir þær því ég sé börn og ungling reglulega fara frá þeim án þess að skeyta um staðsetninguna. Það skiptir sennilega meira máli að halda í viðskiptin en að framfylgja reglum.
Ef notuð væru rafræn skilríki við innskráningu í stað þess að fá kóða á símanúmerið myndi vera hægt að staðfesta aldur og auðkenni þess sem tekjur hjólið. Það geta auðvitað margir deilt sama greiðslukortinu svo þau geta ekki staðfest neitt.
Tímapunkturinn sem ég fattaði að ég næstum orðinn miðaldra var þegar ég hundskammaði 16 ára nágranna minn fyrir að sífelt vera að skilja eftir þessi fokking hopp hjól bókstaflega liggjandi á miðri gangstétt í götunni.
Fólk er alveg ótrúlegt. Sat á bekk á Laugarvegi í blíðviðrinu í gær þar sem er göngugata. Kom stelpa á hopphjóli rétt hjá og stoppaði og skráði sig af því. Hún setti ekki standarann á heldur lét það bara detta á miðja götuna og labbaði í burtu. Kom annar vegfarandi og reysti það við og hristi hausinn.
Þessari stelpu var bara drull.