Share.

    12 commenti

    1. remulean on

      Við getum hækkað frjósemi með því að horfa á hana eins og hindrunarhlaup. Til að hlaupa alla leið( eignast börn) þarf að vilja það. En til að komast alla leið þurfa hindranirnar líka ekki að vera of erfiðar. Janfvel hindranir sem ekki voru of erfiðar áður geta verið of erfiðar núna af því að viljinn er ekki jafn mikill og áður.

      Í hindrunarbreytunni eru margar minni breytur (hver hindrun)sem samfélagið hefur stjórn á, sumt með lögum, annað með aðstæðum og menningu. Fæðingarorlof, kaupmáttur, pláss á leikskólum, framboð fasteigna, sveigjanleiki í vinnu, og svo framvegis hefur allt áhrif á hvort að hvert par kemst alla leið í að eignast barn.

      Allt eru þetta breytur sem samfélagið á einn eða annan hátt stjórnar, beint eða óbeint. Og þegar ein eða fleiri hindrun verður of mikil þá er ekki víst að viljinn sé nægilegur til að yfirstíga þær.

      Persónulega, ég á 2 börn. Ég mun ekki eignast fleiri, þó ég vilji, fyrr en að konan mín er aftur komin í þá braut í starfi að hún verði ekki fyrir frekari skakkaföllum( að segja að barneignir hafi rústað starfsframa hennar er mjög vægt til orða tekið), við komin í stærra húsnæði og aðstæður í leikskólum þannig að maður þurfi ekki að gera ráð fyrir tveggja til þriggja ára óvissu og starfseyðandi aðstæðum.

      Hver veit hvort að maður vilji annað barn þegar þessar hindranir eru úr vegi?

    2. Mitt eldra komst á leikskóla þegar var korter í tveggja ára afmæli og við þurfum að brjóta fjárhag okkar til að kaupa íbúð sem yrði ekki þröng fyrir okkur fjögur.

      Margt sem Íslenska ríkið og sveitarfélagið gerir sem hjálpar, heimagreiðslur og barnabætur og ódýr leikskóli og tiltörulega langt fæðingarorlof, svo ég ætla ekki að segjast vera upplifa algert aðgerðarleysi. En mér finnst ég samt vera að synda móti straumnum hérna bara til að rétt ná upp í replacement rate.

    3. DonsumFugladansinn on

      Þegar níu af hverjum tíu íbúðum sem seldar eru hér á landi eru keyptar af fjárfestum en ekki fólki… kemur þetta einhverjum á óvart?

      Börn eru afurð heimila og nú eru heimili undir risaárás frá fjárfestingageiranum – og enginn að verja þau… allt svo sorglegt og úrkynjað eitthvað

    4. No_nukes_at_all on

      Vanmetin àstæða er að samfélagslegur þrýstingur á ungt fólk að eignast börn hefur snarminnkað á seinustu áratugum, fjöldi fólks i dag velur sér að vera barnlaus.

    5. gerningur on

      Er ekki líka orðið of mikið vesen að ala upp börn. Meiri félagslegur þrýstingur á að passa að þau séu heima eftir útivistartíma, fylgjast með því hvað þau eru að gera á netinu, kynnast vinum þeirra ect. Þetta var ekki svona á síðustu öld.

      Ekkert endilega að segja að þróunin sé slæm en það þarf mun meira að nenna þessu nú en þegar krakkar sáu um sig sjálfir að miklu leiti frá unga aldri.

    6. Morvenn-Vahl on

      Er merkilega fegin að hafa eignast aldrei börn. Miðað við hvert stefnir í loftslagsmálum og í hinum svokallaða “Late Stage” kapítalisma þá hef ég engan áhuga á að skilja eftir einhverja erfingja í helvíti.

    7. icelandicvader on

      Er einhver rík þjóð sem að er ekki með lækkandi frjósemi?

    8. Það eru mörg lönd í heiminum sem eru enn með mikla frjósemi. Ef við viljum fæða fleiri börn þá ættum við að vera með okkar samfélag líkara þeim.

    9. MarsThrylos on

      Eru ekki börn hæsta kolefnissporið?

      Er það ekki bara frekar jákvætt að konur eignist færri börn ef það á í alvöru að draga úr kolefnislosun?

      Afhverju er aldrei talað um það í þessari umhverfisumræðum að við erum bara orðin alltof mörg?

    10. ViggoVidutan on

      Það er allt of mikið talað um neikvæðu hlutina við það að eignast börn og of lítið af því hvað það er yndislegt. Lífið er ekki alltaf auðvelt (með eða án barna) en að eignast börn og fá þau inn í líf sitt er ólýsanlega dýrmæt.

    Leave A Reply