
Non so quanto sia sicuro gareggiare con veicoli così grandi, ma fanculo, si vive solo una volta.
Il ragazzo che guida la carrozza che sto prendendo adesso almeno prende la cosa molto sul serio, lascerà sicuramente Grafarvogur a velocità record
https://i.redd.it/502jzrs7ef2e1.jpeg
di Drains_1
1 commento
Ef það væru fleirri vagnar, þá fengu bílstjórar meiri hvíld á milli ferða og væru ekki að keppast við að vera sem fyrstir að klára hringinn til að fá sem mesta hvíld milli ferða.
En í staðin fáum við Nýfrjálshyggjuumgjörðina þar sem opinbera þjónustan er tætt í sundur þangað til að bæði þeir sem nota hana, og þeir sem vinna við hana, eru tilbúnir að kaupa það að einkarekstur sé betri.
Þetta heitir einbeittur brotavilji í flestum öðrum verkefnum – en í stjórnmálum nýfrjálshyggjunar er þetta eðlilegur leikur.
Opinber þjónusta mun grotna niður þangað til við höfnum þeirri hugmyndarfræði að ríkið eigi einungis að skaffa grundvöll fyrir markaði með lagasetningum og reglugerðum, og einkaaðilar eigi að veita alla þjónustu með gróða reksturins sem eina markmiðið. Þannig fáum við lágmarksþjónustu, frekar en góða þjónustu, á hámarks verði fyrir notendur hennar sem fer í vasa þeirra sem eiga nóg nú þegar.