“La vittoria del partito di centro alle elezioni per i bambini delle scuole elementari, svoltesi alla vigilia delle recenti elezioni per l’Althingi, ha attirato l’attenzione. Uno scienziato politico dice che il risultato non ha senso. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, presidente del Partito Centrale, le dice che il futuro del partito è luminoso.

    Nel suo libro “L’età dell’uomo forte”, il giornalista britannico Gideon Rachman discute dell’ascesa dei populisti nazionalisti come Putin, Erdogan, Orbán e Trump. Dice che questi uomini – uomini con culti della personalità, che favoriscono il totalitarismo, sono xenofobi, sospettosi nei confronti dei media e predicano valori sociali conservatori – sono “l’attacco più grave ai valori democratici liberali visto dagli anni ’40”.

    https://heimildin.is/grein/23550/old-einvaldsins/

    di numix90

    Share.

    9 commenti

    1. Ooooog? Ætlar þú ekkert að bæta neinu við þetta?

      Þykir alveg óþolandi þegar það er spannað linkum hingað inn án þess að OP byrji umræðu. Þarf ekki að taka þetta fyrir, af eitthverri ástæðu hlýtur OP að hafa sett linkinn hérna inn, með eitthvað I hausnum.

    2. Johnny_bubblegum on

      Þegar ég var ungur var þróunin á einn veg. Hlutirnir voru almennt að batna ár frá ári, minnihlutahópar fengu aukin réttindi út um allan heim og almennt viðhorf til náungans batnaði. Ég fékk þá hugmynd að með tímanum batni hlutirnir því fólkið sem heldur í þessar kömlu kreddur einfaldlega deyr og þessar hugmyndir með þeim. Framtíðin var björt.

      Nú er ég farinn að halda að of margir sem muna eftir seinni heimsstyrjöldinni og fasismanum séu dánir og við erum ófær að læra af mistökum forfeðra okkar. Fólk er beinlínis að klappa upp hluti úr sögunni sem ég í einfeldni minni hélt að hefði verið skilið eftir í fortíðinni því við vissum betur í dag, meira að segja ógerislneydda mjólk og mislinga…

      Kannski er leiðtogadýrkun, árásagirni, viljinn til að drottna yfir öðrum og hatur í garð annara sem eru ekki nógu líkir þér default stilling okkar og andstæðan einhver vanstilling sem er að líða sitt skeið.

    3. Frjálslynd lýðræðisgildi eru auðvitað best og forræðishyggjan skelfing, það er alveg rétt..

      En væri samt gaman að fá útlistun á hvaða gildi Miðflokksins ganga gegn frjálslyndum lýðræðisgildum í stað þess að ímynda bara að einn pólítíkus eigi sér hliðstæður í öðrum vondum erlendum pólítíkusum og sé þar af leiðandi vondi kallinn.

      Ég hef ekki séð neitt benda til þess að Miðflokkurinn sé á móti frjálslyndi og kannski nær að líkja Sigmundi við Milei eða Boris ef þú ætlar að reyna að finna einhverjar skondnar hliðstæður.

      Gunnar Smári fær að vera Pútín, einhver alveg talnablindur fær að vera Erdogan, Inga Sæland kannski, Arnar fær að vera Orbán og Bjaddni kannski líkastur Trump, báðir teflonhúðaðir.

      Svona samanburður er samt alltaf kjánalegur og nær í besta falli að vera fyndinn, þetta eru allt einstaklingar með skoðanir sem falla ekki beint að neinum öðrum erlendum smákóngum enda Íslenskt samfélag í mikilli sérstöðu að mörgu leyti þegar kemur að lífsgæðum og jöfnuði.

    4. Stokkurinn on

      Við erum búin að vera með einvald í borgarstjórn í langan tíma. Hann hefur gert út á að stjórna fjölmiðlum með risa upplýsingasviði Reykjavíkurborgar sem er nánast ein stærsta fréttastofa landsins og sennilega mjög virk á reddit m.v. umræðuhallann hér.

      Að líkja Trump saman við hina í listanum er bara lélegur áróður, Trump er að reyna að minnka völd ríkisins, sem og þátttöku í stríðum í heiminum. Mætti frekar líkja Trump við Milei eins og er m.v. stefnuna sem er verið að setja.

      TIME var að velja Trump mann ársins, það sem er sérstaklega merkilegt er að hann er ekki orðinn forseti, en hann er samt komin á kaf í heimsmálin og virðist vera að sameina stærri hluta þjóðarinnar á bakvið sig en kaus hann.

      Það eru gríðarlegir peningar sem vinna á móti honum, enda er t.d. Úkraínustríðið orðin leið fyrir ameríska hergagnaframleiðendur til að skrúfa frá sjóðum ríkisins til að kaupa vopn af sér og senda til Úkraínu. Þeir dæla því peningum inn í fjölmiðla og alla sem þá styðja, fólk og þ.á.m. fréttamenn er alltof duglegt að taka því sem heilögum sannleik í dag og of lítið um rannsóknarblaðamennsku án markmiðs – þ.e. áhugaverð frétt, köfum dýpra og reynum að skilja. Ef það er farið í rannsóknarblaðamennsku þá er alltof oft agenda á bakvið.

      Miðflokkurinn hefur líka talað fyrir því að draga saman í útgjöldum ríkisins.

    5. Held að atkvæði krakkanna hafi frekar farið til Miðflokks útaf því að þau fengu krakka til að tala um flokkinn í kynningunni, og voru víst með hund í öðru myndbandi. Heldur einhver að þau hafi verið að tala um hvað þau raunverulega vilja gera þarna? Þau hafa örugglega komið með bara einhverja vel útvatnaða froðu og sett fram á hátt sem hentar krökkum.

      Þegar ég var lítill sagði ég pabba að kjósa Sjálfstæðisflokkinn útaf því að þau gáfu mér íspinna. Hann hló bara. Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn

    6. Vinnumálastofnun = áróður.

      mbl = áróður.

      whatever = áróður.

      Þetta lið er búið að missa sig það mikið í að allt sé fasismi og áróður en þegar að fjölmiðill sem hatar Sjálftstæðisflokkinn og Miðflokkinn og Sigmund og Bjarna og allt þetta að þá er það svo sannarlega ekki áróður eða whatever.

      Það er allt í lagi að sprauta hormónablokkorum í börn en það er sko stórhættulegt ef að Miðflokkur vinnur í einhverjum krakkakosningum. Ruglað lið.

    7. TheopoldLothaire on

      Flytur auð frá yngri til eldri kynslóða.

      Setur íslandsmet í móttöku flóttamanna.

      Algjörlega laus við persónutöfra.

      Getur ekki verið snyrtilegur til fara.

      Reynir að boða til kosninga þegar almúginn mótmælir honum.

      Segir af sér.

      “Sif Sigmarsdóttir, fædd 1978, er kunn fyrir beittan húmor og skarpa sýn á samfélagið.” —Forlagið

      Húmor og skarpskyggni: “Allir sem ég er ósammála eru bókstaflega Hitler™”

      Allt svo þreytandi. Einsog kosningabaráttan sem snerist bara um að birta skoðanakannanir. Liggur við að maður fari að óska eftir Hitler eða Trump eða Milei bara til að krydda tilveruna. Afhverju var Gnarrinn ekki meira áberandi?

    8. Express_Sea_5312 on

      Upplýsingaöldin er að líða og öld misvísis að rísa.
      Þygg líka betri orð yfir “misinformations” ef þið eigið það til

    Leave A Reply