Share.

    1 commento

    1. >„Þarna kem­ur fólk við sögu sem við telj­um að hafi átt þátt í dauða Geirfinns og viti hvað gerðist. Einnig fleiri viðkvæm­ar upp­lýs­ing­ar sem tengj­ast vinnu­brögðum lög­regl­unn­ar í mál­inu á sín­um tíma. Þetta fólk á rétt á friðhelgi einka­lífs því þau vildu ekki ræða við okk­ur við gerð bók­ar­inn­ar. Fyr­ir vikið þá höf­um við alltaf talið að að þess­ar upp­lýs­ing­ar og vís­bend­ing­ar sem við búum yfir eigi heima hjá lög­reglu­yf­ir­völd­um. Þau hafi rann­sókn­ar­heim­ild­ir sem fjöl­miðlafólk hafi ekki og geti rann­sakað hvarf Geirfinns upp á nýtt,“ seg­ir Jón Ármann og biður fólk vin­sam­leg­ast um að dreifa ekki gögn­un­um. Inni­haldið eigi ekki er­indi við al­menn­ing að svo stöddu auk þess sem ekki sé um loka­út­gáfu af 13. kafl­an­um að ræða.

      >„Mér þykir afar und­ar­legt að yf­ir­völd í land­inu skuli ekki hafa áhuga á nýj­um upp­lýs­ing­um og vís­bend­ing­um um óupp­lýst morð á Íslandi. *Ég veit eig­in­lega ekki hvað við eig­um að gera ef nýr dóms­málaráðherra vill ekki bregðast við þessu. Það er mjög miður að nú séu upp­lýs­ing­ar í dreif­ingu sem við vild­um fyr­ir löngu síðan koma í hend­ur yf­ir­valda* því þar eiga gögn­in heima,“ seg­ir Jón Ármann Steins­son í sam­tali við mbl.is.

    Leave A Reply