
Guarda ora che di solito sono la prima persona a lava sulla città e come viene licenziata, ma … è davvero questa responsabilità della città? Non è qualcosa che lo stato dovrebbe assumersi la responsabilità piuttosto che il governo della città?
https://www.visir.is/g/20252721292d/-thetta-er-vita-hringur-sem-endur-tekur-sig-i-si-fellu-
di Ironmasked-Kraken
2 commenti
Samkvæmt lögum þá bera sveitarfélög ábyrgð og þessum málaflokki. Hvort það sé eina rétta leiðin veit ég ekki en persónulega finnst mér líklegra að sveitarfélög líklegri til að hugsa um einstaklinga en ríkið. Hef svosem ekkert fyrir mér annað en tilfinningu um að það sé “nær” viðkomandi.
Bara enn annað dæmi þeirri hugmynd í vil sem ég hef nefnt hérna áður og svoleiðis verið niðurkosinn til Dalvíkur fyrir.
Okkur vantar millistigslausn. Fólk sem er ekki rétt að geyma á geðdeild, enda er slíkt almennt bara mjög, mjög tímabundin vistun, og eins fólk sem er ekki rétt að geyma í fangelsi vegna þess að þó svo að væri með heimsins hæstu-klassa betrunarvist, þá bætirðu einfaldlega ekki geðræn vandamál ef markmið vistarinnar er helst byggt á psuedo-refsistefnu+betrunarvist.
Við erum með þjófsjúkt fólk, glæpasjúkt, geðsjúkt og bara allar mögulegar tegundir. Úrræðið til að taka á móti fólki af þessari tegund til langtímavistar ætti ekki að vera minna en fangelsið sem byggja á til að leysa af hólmi Litla hraun. Það mætti jafnvel vera virkt samspil á milli beggja úrræða með stöðugum rannsóknargildum fyrir áhugasama til að taka stöðugt púlsinn á ástandinu, og sjá hvort hægt sé að gera eitthvað betra.
Þá má eins einnig starfrækja eitthvað svipað eins og hefur verið á litla hrauni, eitthvað til að skaffa þessu fólki einhverja atvinnu af einhverju tagi, hafi það tök og löngun í slíkt.
Grínlaust. Hættum að vera hálfvitar. Hættum að streytast á móti vandamálunum og þykjast að fangelsi, að senda fólk úr landi, eða bara heilt yfir að draga fólk á bakvið skúr og skjóta það, séu raunhæfar lausnir fyrir öll vandamál.