La compagnia turistica ha multato per aver minacciato un dipendente che si è ritirato per l’adesione a un sindacato – Rúv.is

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-05-05-ferdathjonustufyrirtaeki-sektad-fyrir-ad-hota-starfsmanni-uppsogn-fyrir-ad-ganga-i-stettarfelag-442923

    di birkir

    Share.

    2 commenti

    1. >Maðurinn sem um ræðir heitir Bernat Pujol Alemany og hafði hann starfað hjá ferðaþjónustufyrirtækinu um hríð þegar hann ætlaði að ganga í Verkalýðsfélag Suðurlands. Bernat er rúmlega þrítugur Spánverji. Eigandi hótelsins sem um ræðir, Ingólfur Ragnar Axelsson, lét Bernat vita af því í spjalli á samfélagsmiðlinum Slack að hann myndi missa vinnuna ef hann gerði þetta.

      >Í dómsorðum félagsdóms segir orðrétt um niðurstöðuna í málinu: „Viðurkennt er að eftirfarandi ummæli Ingólfs Ragnars Axelssonar, stjórnarmanns og eiganda stefnda, Hvalvörðugilslækjar ehf., 19. janúar 2024 á samskiptaforritinu Slack hafi falið í sér hótanir um uppsögn á ráðningarsamningi við A og brot gegn a-lið 4. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.“
      >
      >Meðal þess sem Ingólfur sagði við Bernat var:
      >>„Ef þú vilt ganga í stéttarfélagið sem þú varst í verður þér sagt upp, bara svo það sé alveg skýrt.“
      >
      >Guðrún Elín Pálsdóttir sagði við fréttastofu í september að verið væri að ráðskast með erlent starfsfólk hér á landi. „Það er verið að ráðskast með fólk og verið að stjórna því. Verið að ákveða fyrir það hvað það á að gera og svo framvegis. Það er ekki þannig sem þetta á að virka. “

      Þetta fyrirtæki, Tröll, hefur áður komist í pressuna fyrir óheppileg skilaboð á vefspjalli – heimspressuna jafnvel: https://www.independent.co.uk/travel/news-and-advice/trollaferdir-iceland-tour-company-bans-uk-holidaymakers-brexit-eu-members-only-tough-luck-a7748961.html

    2. gamlinetti on

      Hversu oft þarf fólk að fá að komast upp með svona lagað áður en það er svipt rekstrarleyfi til frambúðar? Þetta er svona um allan ferðaþjónustuiðnaðinn og í veitinga og þjónustugeiranum og dregur smám saman úr réttindum okkar allra þegar það fær að viðgangast hömlulaust um árabil.

    Leave A Reply