Share.

    2 commenti

    1. sofaspekingur on

      > Sjálf vill Sara að í nám­inu sé farið yfir hvernig á að haga bekkjar­stjórn og ein­kunna­gjöf, nota Mentor, eiga sam­skipti við for­eldra, sinna börn­um með sérþarf­ir, hvernig tækla eigi einelti og of­beldi, búa til náms­mat og hæfniviðmið og fleira. En ekk­ert af þessu hef­ur verið farið inn á.

      >„Mér finnst ég ekki vera að læra neitt. Ég kannski mæti í tíma og við erum að kubba. Svo mæti ég í næsta tíma og við erum í Var­úlfi og nafna­leik. Við erum líka að æfa okk­ur í að halda bekkjar­kvöld. Svo erum við að tala um kenn­ing­ar,“ seg­ir Sara í sam­tali við Morg­un­blaðið.

      >Hún seg­ir mikið um end­ur­tekn­ing­ar í kennslu­fræðiá­föng­um, eins og kenn­ar­ar séu ekki meðvitaðir um hvað sé verið að fara yfir í öðrum áföng­um en þeir sjálf­ir kenna. Þá virðist sem marg­ir kenn­ar­anna hafi ekki starfað inn­an grunn­skól­anna árum sam­an og hafi því litla til­finn­ingu fyr­ir stöðunni og áskor­un­un­um þar.

      Höfum þetta í huga næst þegar kennarar svara gagnrýni á skólakerfið þannig að þeir séu sérfræðingar.

    2. mér finnst þetta stórfurðuleg frásögn

      ég hef verið nemandi í kennslufræði til kennsluréttinda við menntavísindasvið háskóla íslands, við fórum bara aldrei nokkurn tímann í einn einasta leik eða dundur

      ég hef mínar skoðanir á náminu, aðallega góðar – einhverjar vægar kvartanir sem snúa eiginlega ekki að einhverju sem deildin hafði stjórn á

      en fyrir mér var námið bara lestur á akademískum fræðigreinum á sviði kennslufræði, og í tímum fyrirlestrar, verkefni og umræður um þær greinar – svo reynsla, þ.e. kennsla á vettvangi í skóla og undirbúningur á kennslustundum

      það væri mjög áhugavert að sjá kennsluáætlun úr þeim námskeiðum sem Sara hefur setið, því þetta samræmist engan veginn minni reynslu

    Leave A Reply