Share.

    6 commenti

    1. KristinnK on

      Þetta er sérstaklega áhugavert í ljósi þessa atriðis:

      > Meðal Reykvíkinga segjast 46,4% fylgjandi staðsetningunni en 30,5% andvíg.

      Þ.e. jafnvel meðal borgarbúa eru það miklu fleiri sem vilja halda flugvellinum þar sem hann er en sem vilja færa hann. Öll rök um það að flugvöllurinn sé aðskotahlutur sem íbúar vilja ekki falla því um sjálf sig. Það er (allaveganna samkvæmt þessari könnun Maskínu) lýðræðislegur vilji íbúa sveitarfélagsins að halda flugvellinum þar sem hann er.

    2. Upbeat-Pen-1631 on

      Það er skemmtilegur samkvæmisleikur að túlka niðurstöður skoðanakannana.

    3. Munum að Sjalfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru stærstu flokkarnir sem segir allt sem segja þarf varðandi lýðræði.

    4. islhendaburt on

      Skrítin könnun eða allavega framsetningin á niðurstöðunni, því þetta kökurit vekur bara upp spurningar. 

      Hvað þýðir að 26% hafi svarað “Í meðallagi” sem svar við spurningunni “Ert þý[sig] hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði í Vatnsmýri?”? 

      Var könnunin skali með 5 valkostum (hlynntur, í meðallagi hlynntur, engin afstaða, í meðallagi andvígur og andvígur) en þau slógu saman valkostum til að einfalda framsetninguna? Eða er þetta bara vitlaust merkt og 26% tóku enga afstöðu 

    5. KristatheUnicorn on

      Væri gaman að sjá þessar tölur um hvort fólk er fylgjandi eða andvíg eftir búsetu þar sem ég er nokkuð vissum um að fólkið í blokkinni sem ég bý í er ekkert himinlifandi yfir því að hafa flugvélar fljúgandi yfir með tilheyrandi hávaða.

    Leave A Reply