Share.

    2 commenti

    1. Both_Bumblebee_7529 on

      Ég er sammála með þennan misskilning með skóla án aðgreiningar. Við íslendingar erum mikið í að fara úr einum öfgum í aðra: Of mikill aðskilnaður? Förum þá bara beint í að setja ALLA saman í almennan skóla! Ég vinn í leikskóla og á hverju ári fæ ég sjokk yfir einhverjum af börnunum okkar sem fengu ekki skólavist í sérskóla af því fötlun/röskun þeirra þótti ekki nógu alvarleg (börn sem að mínu mati þyrftu margra klukkutíma sérkennslu á dag til að eiga séns á að halda í við jafnaldra náms- þroska- og félagslega). Ekki líður þessum börnum vel í almennum skólum og einhvern veginn brýst sú hegðun út.

      Svo þarf klárlega að setja meiri pening í barnavernd svo hún geti stutt fjölskyldur í alvarlegum vanda. Oft vantar foreldra bara hjálp og stuðning til að geta sinnt börnunum sínum en barn sem býr við óviðunandi aðstæður hlýtur að líða illa yfir daginn í skólanum líka.

    2. Equivalent_Day_4078 on

      Nú er ég að fara að hljóma eins og boomer þó það sé ekki langt síðan ég fór úr skólakerfinu en þetta er rosaleg vanvirðing sem nemendur hafa fyrir fullorðnum.

      Mitt gisk er að meðvirkir foreldrar leyfa þessu að grassera og lætur börnin halda frekar að þau komist upp með svona athæfi því þau trúa að krakkinn sinn sé engill sem myndi aldrei gera slíkt.

    Leave A Reply