>Moskítóflugur hafa fundist í hesthúsi á Suðurlandi. Frá þessu greinir Björn Hjaltason sem var fyrsti maðurinn til að finna moskítóflugur hér á landi í Kjós í Hvalfirði.
>„EN – á mánudagskvöld síðastliðið barst mér mynd austan úr sveitum af flugu sem vissulega var moskító. Við Matti skondruðumst austur í morgunsárið daginn eftir til að kanna málið og ekki var um að villast. Í hesthúsi á bæ einum tóku á móti okkur nokkrar moskítóflugur og það sem meira er, að ekki var um sömu tegund að ræða og þá sem ég hef verið að finna undanfarið. Tegundin er af ættkvíslinni Culex en frekari greining liggur ekki fyrir.“
>Fréttastofa ræddi við prófessor emeritus um málið sem sagðist telja það taka fluguna um tíu til fimmtíu ár að koma sér fyrir um land allt.
1 commento